15.08.26 - 15:04
Brynjar Ingi Erluson
Irankunda seldur frá Watford til Sporting (Staðfest)

Mynd: Sporting

Mynd: Sporting
Ástralski landsliðsmaðurinn Nestory Irankunda er formlega genginn til liðs við portúgalska stórliðið Sporting frá Watford.
Sporting greiðir Watford sautján milljónir punda fyrir Irankunda, sem skrifaði undir fimm ára samning í dag.
Riftunarákvæði upp á 68,5 milljónir punda er í samningnum.
Þýskalandsmeistarar Bayern München fá 40 prósent af kaupverðinu, eða tæplega sjö milljónir punda.
Irankunda er tvítugur vængmaður og var einn besti leikmaður ástralska landsliðsins sem komst í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins í sumar.
Bayern keypti hann frá Adelaide United árið 2024 en seldi hann ári síðar til Watford. Irankunda skoraði fjögur mörk í 37 leikjum á sínu eina tímabili hjá enska félaginu.

???? Don’t stop ’til you get enough
— Sporting CP (@SportingCP) August 15, 2026
Nestory Irankunda veste ?????? pic.twitter.com/TNeDOMGmIR