Fotbolti.net
15.08.26 - 13:03
Brynjar Ingi Erluson

Romero til Atlético (Staðfest)

Romero til Atlético (Staðfest)
Canon

Mynd: Atlético Madríd

Spænska félagið Atlético Madríd hefur staðfest komu argentínska varnarmannsins Cristian Romero frá Tottenham.
Romero, sem hefur borið fyrirliðabandið hjá Tottenham síðasta árið, vildi komast frá félaginu í sumar og var eftirsóttur af nokkrum stórliðum.

Atlético og Inter leiddu kapphlaupið en erkifjendurnir í Arsenal sýndu honum einnig áhuga. Tottenham útilokaði hins vegar að selja fyrirliða sinn þangað og stóð valið því á milli Atlético og Inter.

Romero valdi Atlético og mun þar vinna undir stjórn landa síns Diego Simeone. Hann skrifaði undir fimm ára samning og er kaupverðið talið vera um 35 milljónir punda.

Romero á 58 landsleiki og fjögur mörk fyrir Argentínu. Hann gegndi stóru hlutverki í liðinu sem varð heimsmeistari árið 2022.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.