15.08.26 - 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Svissneskur landsliðsmaður á leið til Leeds

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Leeds United og Borussia Mönchengladbach hafa náð samkomulagi um kaup og sölu á svissneska varnarmanninum Nico Elvedi, en það er Sky Sports sem greinir frá.
Samkvæmt heimildum Sky greiðir Leeds um 6,8 milljónir punda fyrir Elvedi.
Miðvörðurinn var ekki í leikmannahópi Gladbach í æfingaleik gegn Aston Villa í dag og er sagður á leið til Englands.
Gladbach fær einnig fimmtán prósent af næstu sölu Elvedi.
Elvedi er 29 ára gamall og fastamaður í svissneska landsliðinu. Hann á 73 A-landsleiki að baki og byrjaði alla leiki liðsins á heimsmeistaramótinu í sumar.
Koma Elvedi til Leeds gæti opnað dyrnar fyrir belgíska varnarmanninn Sebastiaan Bornauw til að ganga í raðir Hamburger í Þýskalandi.