15.09.26 - 08:28
Elvar Geir Magnússon
Coutinho sameinast Neymar hjá Santos (Staðfest)

Mynd: Santos

Mynd: Santos
Philippe Coutinho hefur gengið til liðs við Santos í Brasilíu og mun þar spila með Neymar en þeir tveir eru gríðarlega góðir vinir.
Coutinho er 34 ára gamall og hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Vasco da Gama í febrúar. Hann yfirgaf félagið vegna pressu frá stuðningsmönnum sem olli honum hugarangri og andlegri þreytu.
Santos kynnti Coutinho með því að birta nýja mynd af honum með Neymar ásamt gamalli mynd frá því að þeir voru táningar.
Coutinho átti sín bestu ár hjá Liverpool frá 2013 til 2018 áður en Barcelona keypti hann fyrir 142 milljónir punda. Hann náði sér ekki á strik hjá Börsungum en vann þó fjóra titla með liðinu og var lánaður til bæði Bayern München og Aston Villa áður en Villa keypti hann fyrir 17 milljónir punda árið 2022.
Eftir að Gerrard var rekinn frá Villa í október sama ár náði Coutinho sér ekki aftur á strik hjá félaginu. Hann var lánaður til Al Duhail og síðar Vasco da Gama, sem keypti hann á síðasta ári.

Foto devidamente atualizada! ???????????????? pic.twitter.com/xjLiPtEUHO
— Santos FC (@SantosFC) September 14, 2026