Fotbolti.net
15.09.26 - 18:17
Brynjar Ingi Erluson

James hættur með kólumbíska landsliðinu (Staðfest)

James hefur leikið sinn síðasta landsleik

James hefur leikið sinn síðasta landsleik

Canon

Mynd: EPA

James Rodriguez, einn besti leikmaður í sögu Kólumbíu, hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. Hann tilkynnti ákvörðunina á samfélagsmiðlum í dag.
Þessi 35 ára gamli sóknartengiliður hefur verið einn besti leikmaður kólumbíska landsliðsins síðasta áratuginn.

Hann kom sér almennilega á kortið á HM 2014 þar sem hann varð markahæstur, var valinn í lið mótsins og skoraði jafnframt fallegasta mark keppninnar. Í kjölfarið keypti Real Madrid hann frá Mónakó.

James fór einu sinni með Kólumbíu í úrslit Copa America en þar tapaði liðið fyrir Argentínu fyrir tveimur árum. Hann var þá valinn besti leikmaður mótsins og jafnframt í lið mótsins í annað sinn á ferlinum. Árið 2016 vann hann brons með landsliðinu.

Það verður því mikill söknuður af James sem lék 131 landsleik fyrir Kólumbíu og skoraði 31 mark.

„Það er komið að því. Takk fyrir hvern leik, tár og alla draumana sem við deildum saman. Að berjast fyrir liti kólumbíska landsliðsins var einn stærsti heiður lífs míns. Takk Kólumbía, að eilífu,“ skrifaði James.

Leikmaðurinn er kominn aftur til heimalandsins eftir frábæran feril erlendis og gerði eins árs samning við Atletico Nacional. Það gæti því farið svo að skórnir fari endanlega upp í hillu að þeim tíma liðnum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.