15.09.26 - 09:35
Kári Snorrason
Tzolis óánægður með myndaval Ísaks

Myndin sem Grikkinn var óánægður með.

Mynd: Instagram

Landsliðshópurinn fyrir komandi verkefni í Þjóðadeildinni verður tilkynntur á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Myndin sem Grikkinn var óánægður með.

Mynd: Instagram
Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson heimsótti gamla herbergisfélaga sinn, Christos Tzolis, á Emirates leikvanginum fyrr í mánuðinum er hann sá Englandsmeistarana leggja Chelsea að velli, 2-1.
Ísak og Tzolis eru miklir vinir en þeir voru herbergisfélagar hjá Fortuna Düsseldorf fyrir tveimur árum.

TENGT EFNI
Herbergisfélaginn sem er kominn til Arsenal tveimur árum síðar
Ísak fór ásamt fríðu föruneyti á leikinn og heilsaði hann upp á Grikkjann eftir leik. Hann birti myndir af endurfundum hans og Tzolis á samfélagsmiðlum Instagram.
Tzolis var hæstánægður með heimsókn Ísaks en setti þó út á myndaval landsliðsmannsins og var hann ósáttur með myndaval Ísaks.
„Not the best first pic tho,“ skrifaði Grikkinn léttur með hláturköllum í athugasemd undir færslu Ísaks.
Ísak verður að öllum líkindum í landsliðshóp Íslands sem verður tilkynntur í hádeginu á morgun og mætir Eistlandi, Lúxemborg og Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar um mánaðamótin.