Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 15. október 2020 11:55
Hafliði Breiðfjörð
Yfirlýsing frá KSÍ vegna umfjöllunar um leiki og Covid-19
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar undanfarinna daga um Covid-19 og samskipti tiltekinna starfsmanna landsliðsins og leikmanna. Þorgrímur Þráinsson starfsmaður íslenska liðsins greindist með virkt Covid-19 smit í fyrradag. Myndir af honum voru birtar eftir leik Íslands og Rúmeníu á fimmtudaginn þar sem hann faðmaði Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliða og Fréttablaðið segir að þar með hafi hann brotið reglur UEFA um sóttvarnir. KSÍ segir að hann hafi mátt fara inn á völlinn.

Yfirlýsingu KSÍ má sjá hér að neðan.

Vegna umfjöllunar um landsleiki og Covid-19

Vegna umfjöllunar um nýafstaðna leiki A landsliðs karla á Laugardalsvelli, sóttvarnir og Covid-19, og samskipti tiltekinna starfsmanna landsliðsins og leikmanna, vill KSÍ taka eftirfarandi fram:

Umræddir einstaklingar voru hluti af starfsmannateymi liðsins og voru því á varamannabekk (tæknihluta) liðsins. Tæknihlutinn er svæðið til hliðar við og aftan við sjálfan varmannabekkinn, svæði sem er afmarkað fyrir þennan hóp, og á því svæði sitja umræddir starfsmenn liðsins og þeir varamenn sem ekki komast fyrir á sjálfum varamannabekknum vegna fjarlægðarmarka.

Allir í þessum hópi eru á meðal þeirra sem mega fara inn á leikflötinn fyrir leik, í hálfleik og eftir leik. Umræddir starfsmenn á því svæði voru því réttilega á því svæði sem tilheyrir liðinu og fóru ekki á neinum tímapunkti á milli svæða/hólfa á leikvanginum. Allir starfsmenn liðsins voru jafnframt hluti af „búbblu“ liðsins og hafa farið reglulega í skimun (jafn oft og leikmenn), eru hitamældir við komu á leikvang og annað slíkt.

Það er auðvitað leitt að starfsfólk landsliðsins hafi ekki virt nálægðarmörk í umræddu tilviki og sinnt sínum skyldum varðandi grímunotkun, sem er nokkuð sem við hefur verið minnt reglulega á innan raða liðsins. Tilfinningar eru stór hluti af íþróttum, fólk upplifir stórar hæðir og miklar lægðir, og stundum ráða þessar tilfinningar för og menn gleyma sér.

Það afsakar ekki það sem gerðist, en gefur allavega skýringu. KSÍ mun áfram halda sóttvarnarskilaboðum á lofti, leitast við að gera betur og standa undir þeirri ábyrgð sem knattspyrnuhreyfingunni er ætlað í samfélaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner