Bose mótið heldur áfram að rúlla um helgina og eru leikir í kvöld, og á morgun.
Mótið byrjaði um síðustu helgi og vann FH þá 4-1 sigur á Víkingi R. í opnunarleiknum.
Í kvöld mætast Grótta og Íslandsmeistarar KR. Grótta mætir með nýjan þjálfara í leikinn, en Ágúst Gylfason er tekinn við liðinu af Óskari Hrafni Þorvaldssyni.
Á morgun eru svo fjórir leikir, tveir í karlaflokki og tveir í kvennaflokki.
Lærisveinar Óskars Hrafns í Breiðabliki mæta KA og í athyglisverðri viðureign á Samsungvellinum mætast Stjarnan og Valur. Ólafur Jóhannesson, einn af tveimur þjálfurum Stjörnunnar, mætir sínum fyrrum félögum í Val.
Báðir leikirnir í kvennaflokki eru í Skessunni í Hafnarfirði. FH og Keflavík eigast við annars vegar, og KR og Valur hins vegar.
föstudagur 15. nóvember
18:00 Grótta - KR (Vivaldivöllurinn)
laugardagur 16. nóvember
12:00 Stjarnan - Valur (Samsungvöllur)
14:00 Breiðablik - KA (Kópavogsvöllur)
KVK 11:45 FH - Keflavík (Skessan)
KVK 13:45 Valur - KR (Skessan)
Athugasemdir