Leyton Orient hefur rekið knattspyrnustjórann Carl Fletcher úr starfi. Hann var aðeins í 29 daga hjá Leyton Orient.
Fletcher gerði samning til 2021 við Leyton Orient þann 16. október síðastliðinn.
Hinn 39 ára gamli Fletcher og var árangurinn greinilega ekki nægilega góður. Liðinu tókst ekki að vinna neinn af fimm leikjunum undir stjórn Fletcher. Leyton Orient tapaði gegn Maldon & Tiptree United úr áttundu efstu deild í FA-bikarnum síðasta sunnudag.
Ross Embleton mun taka við liðinu til bráðabirgða, ásamt Danny Webb og fyrirliðanum Jobi McAnuff.
Embleton stýrði liðinu áður en Fletcher tók við, en Leyton Orient varð fyrir miklu áfalli síðasta sumar er Justin Edinburgh, stjóri liðsins, lést 49 ára að aldri.
Athugasemdir