Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 15. nóvember 2020 16:05
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin: Skotland tapaði í Slóvakíu
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Slóvakía 1 - 0 Skotland
1-0 Jan Gregus ('32)

Jan Gregus gerði eina mark leiksins er Slóvakía lagði Skotland að velli í fyrsta leik dagsins í Þjóðadeildinni.

Leikurinn í Slóvakíu var nokkuð jafn þar sem gestirnir frá Bretlandi virkuðu hættulegri en komu knettinum ekki í netið.

Gregus skoraði með góðu skoti utan vítateigs og er Slóvakía með fjögur stig eftir sigurinn. Skotland vermir áfram toppsæti riðilsins með 10 stig eftir 5 umferðir. Liðin leika í B-deild.

Norður-Makedónía 2 - 1 Eistland
1-0 Ivan Trichkovski ('29)
1-1 Rauno Sappinen ('52)
2-1 Vlatko Stojanovski ('68)

Í C-deildinni átti Norður-Makedónía leik við Eistland og voru heimamenn í Makedóníu mun betri.

Ivan Trichkovski skoraði í fyrri hálfleik en Rauno Sappinen jafnaði fyrir Eista í upphafi síðari hálfleiks.

Vlatko Stojanovski gerði verðskuldað sigurmark á 68. mínútu og er Makedónía á toppi riðilsins með 9 stig eftir 5 umferðir. Eistland er aðeins með 2 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner