Lárus bendir á staðreyndir - „Gríðarlega mikið gerst á þessum 18 mánuðum"

Lárus Orri tók við ÍA var á botni Bestu deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við erum að gera allt þetta - sem er í takti við það sem félagið vill standa fyrir - um leið og við erum að gera það sem skiptir mestu máli: að hala inn stig

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markús Páll hefur skorað 14 mörk í Bestu deildinni í sumar og er orðaður við erlend félög.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor hefur skorað 13 mörk í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Johannes Vall fer frá ÍA eftir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Styrmir Jóhann hefur komið vel inn í lið ÍA. Hann er fæddur 2008.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta er yngsta liðið sem ÍA hefur verið með síðustu átta ár

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus Orri tók við ÍA var á botni Bestu deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lárus segir í samtali við Fótbolta.net að engin sérstök ástæða hafi verið fyrir því, komið sé langt inn í mótið og hann mat þetta sem góðan tímapunkt fyrir hans aðstoðarmann að fara í eitt viðtal hjá Sýn og Fótbolta.net.

Lárus gaf ekki kost á viðtali - „Hef ekki hugmynd um það“
„Í dag er ég á fullu í því að klára tímabilið, er búinn með 18 mánuði með liðinu og við viljum klára þetta tímabil eins vel og við getum. Svo verður væntanlega sest niður og framhaldið rætt innan félagsins. Þannig sé ég þetta," segir Lárus Orri.
Gríðarlega mikið gerst á 18 mánuðum
Ef þú fengir að stýra framhaldinu, þig langar að taka annað tímabil sem þjálfari liðsins, eða hvað?
„Það er ekkert því til fyrirstöðu. Það hefur mikið rætt um mína vinnu (á Akureyri), en það er ekkert því til fyrirstöðu að ég taki annað tímabil. Það er best að umræðan sé tekin innan félagsins fyrst áður en það sé rætt út á við."
„Ég er búinn að vera hjá félaginu núna í 18 mánuði og þessir 18 mánuðir eru bæði búnir að vera eins mánuður og á sama skapi eins og fimm ár. Það hefur alveg gríðarlega mikið gerst á þessum 18 mánuðum. Skaginn var þá að spila með fimm manna vörn og var tiltölulega varnarsinnað lið. Núna er liðið helst til sóknarsinnað, oft á tíðum. Pressutölurnar hafa lækkað um 22% frá því að ég kom, farið úr 14 (PPDA - passes per defensive action) niður í tæplega 11. Ef ég tek síðustu átta ár, og sjö af þeim eru í efstu deild, þá höfum við ekki verið með jafn hátt xG og í ár, og á þeim tíma aldrei átt jafn oft skot á mark. Við erum með tvo af fjórum markahæstu mönnum í deildinni. Viktor Jónsson er með 0,5 mörk í leik undir minni stjórn, heilt yfir er hann held ég með 0,3 mörk að meðaltali í leik í efstu deild."
„Þetta er yngsta liðið sem ÍA hefur verið með síðustu átta ár, ég fór ekki aftar í tímann í samanburði mínum. Í kringum 30% mínútna eru spilaðar af heimamönnum, allt frá tveimur og upp í fimm í byrjunarliðinu eru heimamenn. Það eru þegar tveir leikmenn farnir frá okkur út, einn á láni (Jón Sölvi Símonarson) og einn seldur (Gabríel Snær Gunnarsson). Ég tel að við höfum á þessum tíma búið til mjög flottar söluvörur. Ekki bara Markús (Páll Ellertsson) því Styrmir (Jóhann Ellertsson) er að standa sig gríðarlega vel og það eru fleiri strákar sem eru búinn að fá alveg hellings spiltíma. Við erum það lið sem hefur gefið flestum leikmönnum yngri en 20 ára mínútur."
„Við erum að gera allt þetta - sem er í takti við það sem félagið vill standa fyrir - um leið og við erum að gera það sem skiptir mestu máli: að hala inn stig. Við erum vonandi að komast á þær slóðir að við erum að fara bæta besta árangur ÍA í efstu deild. Það þarf að fara 20 ára til baka til að jafna það sem við erum að gera núna ef við náum að klára þetta eins og menn."
Er horft í fjórða sætið?
„Fjórða sætið og stigafjöldinn. Ég held að það sé 36-37 stig sem við þurfum að bæta til að ná því sem ég talaði um hér á undan. Það skiptir í stóru myndinni engu máli, en samt öllu máli."
„Þetta er það sem ég er að horfa í. Svo bara setjast menn niður og fara yfir stöðuna. Það er búið að vera mjög mikið að gera. Maður hefur lítið verið að pæla í öðrum hlutum. Það er meistaraflokksráðið sem ræður öllu á Skaganum. Ég ræddi aðeins við framkvæmdastjórann Ingimar áður en við fórum í fríið og sagði við hann að það þyrfti að setjast niður og ræða framhaldið. Ég geri ráð fyrir því að það verði gert fljótlega."
Lárus Orri tók við ÍA af Jóni Þór Haukssyni síðasta sumar og þegar liðið var svo gott sem fallið spyrntu Skagamenn sér fast í botninn og náðu með ótrúlegum lokakafla að halda sæti sínu í Bestu deildinni. Á þessu tímabili var liðinu spáð 4.-5. sæti í flestum spám. ÍA er tveimur stigum frá 4. sætinu þegar sex stig eru í pottinum.
Formaðurinn hlýtur að geta svarað því
Það hefur heyrst af því að ÍA hafi tekið fund með Heimi Guðjónssyni, hefur þú heyrt eitthvað eða finnst þér eitthvað um þetta?
„Ég hef svarað spurningum um hluti sem ég veit um. Þetta veit ég ekki og hvet þig til að hringja í formanninn og spyrja hann að þessu. Hann hlýtur að geta svarað fyrir það," segir Lárus Orri.
Johannes Vall að kveðja
Varðandi leikmannamál, er eitthvað sem orðið er ljóst annað en að Rúnar Már Sigurjónsson mun leggja skóna á hilluna?
„Johannes Vall verður ekki áfram hjá okkur. Hann er algjör toppmaður, mjög flottur spilari. Hann hefur kannski ekki hentað okkur eins vel og í leikkerfinu sem ÍA spilaði áður. Hann er í toppformi miðað við aldur og það verður spennandi að fylgjast með hvert hann fer. Hann er búinn að vera frábær þjónn fyrir ÍA og við kunnum honum allar þakkir. Hann fær síðasta leikinn á tímabilinu sem kveðjuleik, verið mjög flottur leikmaður fyrir okkur," segir þjálfarinn að lokum.
Vinstri bakvörðurinn kom til ÍA eftir tímabilið 2021 með Val. Svíinn hefur verið í minna hlutverki eftir að ÍA fór úr fimm manna vörn í fjögurra manna síðasta sumar.

Við erum að gera allt þetta - sem er í takti við það sem félagið vill standa fyrir - um leið og við erum að gera það sem skiptir mestu máli: að hala inn stig

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markús Páll hefur skorað 14 mörk í Bestu deildinni í sumar og er orðaður við erlend félög.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor hefur skorað 13 mörk í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Johannes Vall fer frá ÍA eftir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Styrmir Jóhann hefur komið vel inn í lið ÍA. Hann er fæddur 2008.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta er yngsta liðið sem ÍA hefur verið með síðustu átta ár

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
