12.10.26 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Blómstraði á Vopnafirði og fór í ítölsk stórlið

Doris Bacic, hér fyrir miðju, með Cristiano Ronaldo.

Mynd: Aðsend

Bacic, í efri röð lengst til hægri, fyrir leik með Einherja.

Króatíska kvennalandsliðið spilar á morgun seinni leik sinn við Ísland í umspili um sæti á HM.
Ísland leiðir 4-0 eftir fyrri leikinn í Króatíu síðastliðið föstudagskvöld.

TENGT EFNI
Lið ársins og bestu leikmenn í 2. deild kvenna 2017
Það er athyglisvert að fyrirliði Króatíu er markvörðurinn Doris Bacic, sem lék fyrir Einherja í 2. deild kvenna sumarið 2017.
Bacic lék 16 leiki með Einherja í deild og bikar er liðið hafnaði í næst neðsta sæti 2. deildarinnar með níu stig.
Það er athyglisvert að þrátt fyrir að Einherji hafi ekki riðið feitum hesti þetta sumarið þá var Bacic valin í lið ársins í deildinni. Cecilía Rán Rúnarsdóttir, sem er í dag aðalmarkvörður Íslands, fékk atkvæði í lið ársins en hún var þarna 14 ára gömul.
Í kjölfarið skipti hún yfir til Anderlecht í Belgíu og svo fór hún þaðan til Juventus á Ítalíu. Það er ekki annað hægt að segja en að hún hafi átt mjög áhugaverðan feril þar sem hún var líka einu sinni á mála hjá Arsenal.
Hún var í þrjú ár hjá Juventus en spilaði líka frá 2023 til 2026 með öðru ítölsku stórliði, Napoli.
Núna er hún á mála hjá Neom SC í Sádi-Arabíu.
Bacic er í dag 31 árs og hefur spilað 69 landsleiki fyrir Króatíu. Gera má ráð fyrir því að hún verði í eldlínunni á Laugardalsvelli á morgun.