Fotbolti.net
12.10.26 - 15:10
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Yfirferðin með Elízu Gígju: Hver er þessi Lexi Potter?

Lexi Potter

Lexi Potter

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn

Lexi Potter hefur farið með himinskautum í liði Chelsea í upphafi tímabils og tala Englendingar um hana sem líklega næstu stjörnu liðsins. En hver er þessi Lexi Potter og hvað gerir hana að svona sérstökum leikmanni? 

Kemur úr akademíu Chelsea

Potter er fædd árið 2006, 20 ára gömul, og kemur úr akademíu Chelsea þar sem hún hefur verið frá átta ára aldri. Hún hefur spilað fyrir öll yngri landslið Englands og fékk í þessum glugga, í fyrsta skiptið, kallið að spila fyrir A-landsliðið. Hún skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning aðeins 17 ára gömul sem gerði hana að yngsta kvenkyns atvinnumanni í Englandi á þeim tíma. Hún spilaði á láni með Crystal Palace tímabilin 2023-2025 en tímabilið 2024-2025 var hún sá leikmaður, undir 21 árs, sem spilaði flestar mínútur í ensku deildinni. 

Hún spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Chelsea þegar hún kom inn á gegn Paris FC í Meistaradeildinni fyrir ári síðan. Í mars á þessu ári byrjaði hún sinn fyrsta leik fyrir Chelsea gegn Brighton og skoraði þar sigurmarkið. Síðan þá hefur hún vaxið hratt og fengið aukna ábyrgð innan liðsins. Hún hefur fengið gríðarlegt lof fyrir frammistöðu sína á þessu tímabili en hún er orðinn einn af lykil leikmönnum Chelsea. 

Næsta Keira Walsh

Chelsea keypti leikmenn í sumar sem ætlað var að spila djúpt á miðjunni, þar sem Potter spilar, en hún hefur gripið gæsina og spilar flestarallar mínútur fyrir liðið sama hvort það sé í deildinni heima fyrir eða Meistaradeildinni. Hún er yfirvegaður leikmaður sem veitir varnarlínunni mikið öryggi ásamt því að vera það traust til baka að hún gefur leikmönnum í kring um hana að stíga ofar á völlinn án þess að hafa áhyggjur. Hún og Keira Walsh hafa náð gríðarlega vel saman hjá Chelsea og binda Englendingar miklar vonir við að það sé samstarf sem Sarina Wiegman, þjálfari enska liðsins, horfi til og nýti sér. 

Hún hefur verið einnig verið borin saman við Keira Walsh sem er gríðarlegt hrós en Walsh hefur verið einn allra besti leikmaður Englands síðustu ár. Ásamt því að vonast eftir að sjá þær spila saman fyrir enska liðið vonast aðdáendur liðsins einnig til þess að þarna sé á ferðinni arftaki Walsh þegar hún ákveður að það sé gott komið og skórnir fara á hilluna. Þá skó verður að fylla, en allt bendir til þess að Potter sé töfralausnin. 

Potter kom ekki við sögu í fyrri leik enska liðsins í þessum glugga gegn Grikklandi en liðið er í mjög álitlegri stöðu eftir þann leik og verður áhugavert að sjá hvort Wiegman hendi henni í djúpu laugina annað kvöld. Það er þó aðeins spurning um hvenær en ekki hvort þessi efnilegi leikmaður spili sinn fyrsta A-landsleik sama hvort það verði í þessum glugga eða næstu gluggum. 

Russo valin best og skoraði

Umspil fyrir Heimsmeistaramótið í Brasilíu er í fullum gangi en fyrri leikir fyrri einvíganna voru spilaðir fyrir helgi og þeir seinni verða spilaðir á morgun. Ísland vann góðan sigur á Króatíu en fjölmörg áhugaverð einvígi eru spiluð í glugganum.

Englendingar unnu öruggan 1-3 sigur gegn Grikkjum í Aþenu. Georgia Stanway kom Englendingum yfir seint í fyrri hálfleik eftir frábært samspil og góða stoðsendingu frá Alessia Russo. Maya La Tissier tvöfaldaði forystu þeirra ensku þegar hún fékk boltann frá Keira Walsh, hægra megin í teignum, og þrumaði boltanum í þaknetið. Alessia Russo tryggði svo sigurinn með hnitmiðuðu skoti meðfram jörðinni í vinstra hornið. Kallisti Brouksair skoraði að lokum sárabótamark fyrir Grikkina eftir gott einstaklingsframtak Ioanna Papatheodorou. 

Alessia Russo, sem skoraði og lagði upp í leiknum eins og komið hefur fram, var einnig kosin leikmaður ársins í Englandi fyrir tímabilið 2025-2026. Hún kom við sögu í öllum tíu leikjum liðsins á tímabilinu, byrjaði þar af níu, og skoraði fimm mörk, þar á meðal eitt á Laugardalsvelli í vor. Þetta er í annað sinn sem Russo vinnur verðlaunin en hún hlaut þau einnig fyrir tímabilið 2023-2024. Russo hefur verið risastór partur af enska liðinu síðustu ár og þeim árangri sem þær hafa náð en hún er einnig á top 30 lista Ballon d’Or fyrir síðasta tímabil. 

Norðurlöndin í góðum málum

Ísland var ekki eina Norðurlandaþjóðin sem kom sér í góða stöðu fyrir seinni leikinn í sínu einvígi en Finnland, Noregur og Svíþjóð unnu öll sína leiki, Danir hafa þegar tryggt sér sæti á mótinu. 

Finnarnir fengu Serba í heimsókn en það var Emma Koivisto, leikmaður AC Milan, kom Finnunum yfir og Lotta Lindström og Sanni Franssi, sem spila báðar í WSL 2, komust einnig á blað hjá Finnum. Eina mark Serba skoraði Vesna Milivojevic sem spilar með Malmö.

Þær norsku fóru til Rúmeníu og sóttu þar öruggan 0-2 skyldusigur. Guro Reiten kom Norðmönnum yfir eftir aðeins tíu mínútna leik og það var svo Frida Maanum, liðsfélagi Alessia Russo hjá Arsenal, sem tvöfaldaði forystu þeirra norsku á 34. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og Norðmenn sigldu sigrinum heim og fara með góða stöðu inn í heimaleikinn. 

Að lokum voru það Svíarnir sem fóru til Litháen og gengu frá heimakonum 0-5. Algjör skyldusigur þar sem næstum því 90 sæti skilja liðin að á heimslistanum. Hin 19 ára gamla Felicia Schröder, sem var fengin frá Häcken til Real Madrid í sumar og hefur skorað átta mörk og lagt upp eitt í átta leikjum fyrir spænska stórveldið, var atkvæðamest og skoraði þrennu á rétt rúmlega klukkutíma. Ótrúlega spennandi nafn sem verður spennandi að fylgjast með næstu árin. Stina Blackstenius, leikmaður Arsenal, og Amanda Ilestedt, leikmaður Frankfurt, lögðu sitt á vogarskálarnar í markaskorun og settu eitt mark hver. 

Erin Cuthbert sneri aftur

Írar og Hollendingar fögnuðu stórsigrum gegn Kasakstan og Ungverjalandi en báðir leikir enduðu 0-8 og fara þessi lið í heimaleikina og geta gert fullt af breytingum. Lineth Beerensteyn og Victoria Pelova skoruðu báðar þrennu fyrir Hollendinga en Kyra Carusa var sú eina sem skoraði meira en eitt mark fyrir Írland. 

Skotar unnu góðan útisigur á Tékkum þar sem Caroline Weir og Claire Emslie skoruðu mörk Skotlands. Ofan á sigurinn geta Skotar og Chelsea aðdáendur glaðst yfir því að Erin Cuthbert, fyrirliði Chelsea, spilaði sinn fyrsta leik á tímabilinu eftir að hafa meiðst á hné í sumar. 

Keira Walsh fagnar marki

Keira Walsh fagnar marki

Canon

Mynd: EPA

Alessia Russo var valin besti leikmaður Englands

Alessia Russo var valin besti leikmaður Englands

Canon

Mynd: EPA

Russo og Walsh

Russo og Walsh

Canon

Mynd: EPA

Sarina Wiegman, þjálfari Englands

Sarina Wiegman, þjálfari Englands

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Georgia Stanway skoraði fyrsta mark Englands

Georgia Stanway skoraði fyrsta mark Englands

Canon

Mynd: EPA

Finnar fagna marki gegn Serbum

Finnar fagna marki gegn Serbum

Canon

Mynd: EPA

Frida Maanum skoraði fyrir Noreg

Frida Maanum skoraði fyrir Noreg

Canon

Mynd: EPA

Felicia Schröder

Felicia Schröder

Canon

Mynd: EPA

Erin Cuthbert í baráttunni við Alessia Russo

Erin Cuthbert í baráttunni við Alessia Russo

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.