Fotbolti.net
12.10.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Myndi ekki hika við að fara aftur á vítapunktinn

Marquinhos huggar landa sinn, Gabriel Magalhaes.

Marquinhos huggar landa sinn, Gabriel Magalhaes.

Canon

Mynd: EPA

Gabriel Magalhaes, varnarmaður Arsenal, klúðraði vítaspyrnu þegar Arsenal tapaði í vítakeppni gegn PSG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili.

Þrátt fyrir vonbrigðin segir Gabriel að ef hann fengi annað tækifæri myndi hann ekki hika við að fara á vítapunktinn.
„Það getur allt gerst í úrslitaleik, ég tel að við höfum gert mjög vel. Ef ég fengi aðra vítaspyrnu myndi ég vera klár í að taka hana. Ég er tilbúinn og það, liðsfélagar mínir hafa hjálpað mér mikið eftir þetta," segir Gabriel sem hafði aldrei tekið víti fyrir Arsenal.

„Auðvitað var ég leiður eftir þetta. Ég vil ekki klúðra vítaspyrnu en ég hef lært af þessu. Ef ég myndi fá annað tækifæri þá myndi ég ekki hika."

Arsenal gerir nú aðra atlögu að því að vinna Meistaradeildina en liðið mætir Lille annað kvöld.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.