Fotbolti.net
12.10.26 - 13:54
Elvar Geir Magnússon

Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik

Martín Zubimendi.

Martín Zubimendi.

Canon

Mynd: EPA

Piero Hincapie og Martin Zubimendi verða ekki með Arsenal í leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni á morgun. Þeir meiddust báðir á ökkla eftir sigurleikinn gegn Leeds á laugardaginn.

Þetta er ótrúleg óheppni en leikmenn voru að skokka sig niður og tóku létta æfingu eftir leik.

„Við vorum með skipulagða æfingu og það urðu tvö óheppileg atvik og við misstum tvo leikmenn. Þeir eru að fara í frekari skoðun," sagði Mikel Arteta á fréttamannafundi í dag.

„Ég hef aldrei áður lent í þessu á mínum sjö árum sem stjóri Arsenal. Eina leiðin til að koma í veg fyrir að svona geti gerst er að hætta að æfa. Ef ég ætti spádómskúlu hefði ég sagt þeim að fara bara í pottinn og slaka á."

Arteta segir að það skýrist betur á morgun hversu lengi þeir verða frá en að meiðsli ekvadorska varnarmannsins Hincapie líti út fyrir að vera verri en hjá Spánverjanum.
Leikmaður Arsenal aftur á meiðslalistann
TENGT EFNI

Leikmaður Arsenal aftur á meiðslalistann


Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.