Fotbolti.net
12.10.26 - 14:05
Snæbjört Pálsdóttir

Glódís um pressu á sóknarmennina: Vonandi dettur þetta fyrir þær

Fyrirliðinn Glódís Perla gerir miklar kröfur til íslenska liðsins

Fyrirliðinn Glódís Perla gerir miklar kröfur til íslenska liðsins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennalandslið

Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, segir leikmenn liðsins hvergi nærri sátta þótt Ísland sé með 4-0 forskot gegn Króatíu í umspili um sæti á HM.

Glódís sat fyrir svörum ásamt Þorsteini Halldórssyni landsliðsþjálfara á blaðamannafundi í dag. Seinni leikur liðanna fer fram á Laugardalsvellinum á morgun klukkan 17:30.

„Við gerum gríðarlega miklar kröfur til okkar og okkar frammistöðu,“ sagði Glódís.

Hún segir ýmis taktísk atriði hafa verið tekin fyrir eftir fyrri leikinn. Króatía hafi sýnt að liðið geti skapað hættu ef íslenska liðið missir einbeitinguna, jafnvel aðeins í skamma stund.

„Þótt staðan sé 4-0 í hálfleik er þetta alls ekki búið. Ef við missum einbeitinguna í tvær sekúndur geta þær fengið færi.“


Glódís vill sjá íslenska liðið bæta frammistöðuna frá fyrri leiknum og mæta af fullum krafti í síðari viðureignina.

„Við þurfum að vera hundrað prósent tilbúnar í næstu baráttu.“


Varnarmenn íslenska liðsins létu vel að sér kveða í sókninni í fyrri leiknum og Glódís var spurð hvort það setti aukna pressu á sóknarmenn liðsins að komast á blað.

Hún sagði það ekki skipta íslenska liðið máli hver skoraði mörkin. Sóknarmennirnir ættu einnig stóran þátt í mörkunum með því að skapa færi og koma boltanum inn á hættuleg svæði.

Glódís gat þó tekið undir að það mætti setja örlitla pressu á sóknarmennina fyrir leikinn á morgun.

„Vonandi dettur þetta fyrir þær á morgun.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.