Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. nóvember 2022 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Vann 720 þúsund í XG getraunaleiknum
Mynd: Aðsend

Íslenskur tippari tippaði á rétta markatölu í tíu af þrettán leikjum sem voru á XG getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag.


Var hann meðal níu sænskra tippara sem voru með flesta leiki rétta og skiptu þeir með sér vinningnum. Fær íslenski tipparinn 720 þúsund krónur í sinn hlut.

Tipparinn keypti 128 raðir sem kostuðu 1.664 krónur. Enginn var með alla 13 leikina rétta en vinningsupphæðin fyrir 13 rétta verður rúmlega 700 milljónir króna næstkomandi laugardag.

Húskerfi Fylkis sló í gegn
Tveir getraunaseðlar komu fram með 13 réttum í Enska getraunaseðlinum á laugardaginn og fengu báðir vinninga upp á rúmar 500.000 krónur.

Annar seðillinn var keyptur af húskerfi Fylkis og hinn seðillinn af stuðningsmanni Þórs frá Akureyri og var þar um að ræða opinn seðil uppá 144 raðir og kostaði hann 1.872 krónur.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner