Fotbolti.net
16.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Guppy aftur til Leicester (Staðfest)

Guppy aftur til Leicester (Staðfest)
Canon
Leicester City hefur fengið kantmaninn Steve Guppy aftur til félagsins. Guppy sem er 34 ára kemur frítt frá Glasgow Celtic en hann fór einmitt frá Leicester til skoska liðsins árið 2001. Guppy gekk illa að sanna sig hjá Celtic og var aðeins í byrjunarliði í 22 leikjum hjá liðinu. Hann kom til Leicester árið 1997 frá Port Vale og á að baki 150 leiki fyrir Leicester og mun auka breidd liðsins til muna.
Leicester hefur einnig ákveðið að setja varnarmanninn Steve Howey á sölulista en hann kom til félagsins seinasta sumar og rennur samningur hans út næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.