Fotbolti.net
16.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Conceicao til Porto (Staðfest)

Conceicao til Porto (Staðfest)
Canon
Sergio Conceicao hefur gengið til liðs við gamla liðið sitt Porto eftir að hafa losað sig undan samningi hjá Lazio fyrr í þessari viku. Conceicao sem er 29 ára kantmaður fór frá Porto árið 1998 til Lazio en er nú kominn aftur heim eftir dvöl á Ítalíu og lék hann einnig meðal annars með Inter.
Conceicao hefur hinsvegar leikið fjóra leiki með Lazio í Meistaradeildinni á tímabilinu og því má hann ekki leika með Porto en liðið mætir Manchester United í 16-liða úrslitum.

Conceicao ætlar að reyna allt sem að hann getur til að komast í portúgalska landsliðshópinn fyrir EM sem er einmitt í Portúgal næsta sumar en Conceicao hefur leikið 56 leiki og skorað tólf mörk með landsliðinu á sínum ferli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.