16.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Pinilla til Celta Vigo (Staðfest)

Lotina stjóri Celta Vigo.


Lotina stjóri Celta Vigo.

Celta Vigo hefur fengið sóknarmanninn Mauricio Pinilla að láni út þessa leiktíð frá Chievo og þá hefur Celta forkaupsrétt á honum næsta sumar. Pinilla sem er 19 ára og frá Chile styrkir lið Celta Vigo mjög því að Savo Milosevic er eini leikfæri framherjinn hjá liðinu sem stendur. Celta hefur ekki gengið vel á þessari leiktíð og er í 16 sæti í La Liga en í Meistaradeildinni gengur liðinu betur og er komið í 16-liða úrslit þar sem að þeir mæta Arsenal.
