16.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Bjarni Guðjónsson til Coventry (Staðfest)

Bjarni Guðjónsson fær óblíðar móttökur hjá varnarmanni Sheffield Wednesday í leik með Stoke.


Bjarni Guðjónsson fær óblíðar móttökur hjá varnarmanni Sheffield Wednesday í leik með Stoke.

Coventry hefur fengið íslenska miðjumanninn Bjarna Guðjónsson á láni frá Bochum út þetta tímabil. Bjarni sem er 24 ára hefur ekki náð sér á strik hjá Bochum á tímabilinu og er því kærkomið fyrir hann að fara til Englands. Bjarni er alls ekki óvanur því og lék eins og flestir muna með Stoke hér um árið. Bjarni mun þó ekki vera orðinn löglegur fyrir leik Coventry gegn Walsall í fyrstu deildinni á morgun en mun vonandi sem fyrst fá að spreyta sig.
