Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 16. febrúar 2020 19:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steve Bruce: Verður að sleikja sárin og halda áfram
Steve Bruce.
Steve Bruce.
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Newcastle, var svekktur eftir 4-0 tap á útivelli gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.

„Það sem veldur mér vonbrigðum er það að við erum ólíkir sjálfum okkur í mörkunum sem við fáum á okkur. Þetta voru of auðveld mörk," sagði Bruce.

Eftir markalausan fyrri hálfleik gekk Arsenal á lagið í seinni hálfleik og vann öruggan 4-0 sigur.

„Ég var himinlifandi með hvernig við spiluðum í fyrri hálfleik. Það vantaði hins vegar aðeins upp á sóknarlega. Við vissum að þeir myndu koma áræðnari út í seinni hálfleikinn og við byrjuðum hann ekki vel."

„Þegar þér er skellt svona þá verðurðu að sleikja sárin og halda áfram," sagði Bruce.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner