Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 16. apríl 2021 09:01
Elvar Geir Magnússon
Guðlaugur Victor sagður á blaði hjá Schalke
Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Schalke hefur áhuga á Guðlaug­i Victori Páls­syni sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is.

Schalke, sem er sögufrægt félag í Þýskalandi, er langneðst í Bundesligunni og mun spila í B-deildinni á næsta tímabili.

Guðlaugur Victor, sem er 29 ára, er lykilmaður hjá Darmstadt sem einmitt spilar í þýsku B-deildinni.

Hjá íslenska landsliðinu hefur Guðlaugur Victor spilað stórt hlutverk undanfarin ár, bæði sem bakvörður og miðjumaður.
Athugasemdir