Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 16. maí 2021 15:52
Victor Pálsson
Yngsta byrjunarlið Liverpool á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Liverpool tefldi í dag fram sínu yngsta byrjunarliði á tímabilinu í leik gegn West Brom í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpool er að tapa leiknum eins og er en staðan er 1-0 fyrir West Brom þegar 22 mínútur eru búnar.

Það var Hal Robson-Kanu sem skoraði markið fyrir West Brom en hann fékk tækifæri í byrjunarliði Sam Allardyce í dag.

Meðalaldur leikmanna Liverpool í dag eru 26 ár og 80 dagar sem er yngsta byrjunarlið liðsins á tímabilinu.

Thiago Alcantara og Roberto Firmino eru elstu leikmenn liðsins í dag en þeir eru fæddir 1991. Sá yngsti er Rhys Williams sem er fæddur 2001.


Athugasemdir
banner
banner
banner