FH, KA og Stjarnan voru sigurvegarar gærdagsins í Bestu deild karla. FH vann 2-0 sigur gegn ÍBV, KA vann 0-3 útisigur á Akranesi og Stjarnan varð fyrsta liðið til að vinna Val í sumar.
Þeir Matthías Vilhjálmsson og Davíð Snær Jóhannsson skoruðu mörk FH í Kaplakrika í gær eftir laglegar stungusendingar. Annar sigur FH í sumar staðreynd.
Fyrsta mark KA var ansi fallegt en Daníel Hafsteinsson smellhitti boltann sem barst til hans í D-boganum við vítateig ÍA, þrumuskot sem söng í netinu. Elfar Árni Aðalsteinsson og Jakob Snær Árnason bættu við mörkum í seinni hálfleik og KA er nú í toppsæti deildarinnar.
Lokamark gærdagsins kom svo í uppbótartíma á Samsung vellinum þegar að varamaðurinn Óskar Örn Hauksson fann Oliver Haurits í teignum og Daninn kom boltanum í net Vals. Mörkin má sjá í spilaranum hér að neðan.

Athugasemdir