16.06.04 - 16:57
Magnús Már Einarsson
De Pedro til Blackburn (Staðfest)

De Pedro tekur aukaspyrnu.

De Pedro tekur aukaspyrnu.

Blackburn Rovers hefur fengið vinstri kantmanninn Javier de Pedro. Hinn þrítugi Spánverji kemur frá Real Sociedad en Blackburn fær hann frítt því að hann samningur hans við Sociedad var að renna út. De Pedro hefur ekki verið í náðinni hjá Sociedad að undanförnu en þrátt fyrir það er þetta fínn leikmaður og Graeme Souness stjóri Blackburn ítrekaði það.
Eftir að hafa fengið De Pedro sem að á tuttugu landsleiki að baki er líklegt að Blackburn hætti að reyna að fá Norðmanninn Morten Gamst Pedersen.
Souness sagði í dag að Blackburn muni væntanlega fá sér einn leikmann í viðbót við De Pedro og Paul Dickov sem að kom nýlega til liðsins og hann sagði einnig að það væri líklegt að einhver myndi yfirgefa Blackburn.