Heimild: MBL
Jón Daði Böðvarsson gæti verið á förum frá Millwall. South London News greinir frá þessu í morgun. Millwall er sagt tilbúið að hlusta á tilboð í Jón Daða.
Millwall ætlar að taka inn tvo sóknarmenn í sumar og verður minnst annar þeirra framherji. Jón Daði myndi með því færast neðar í goggunarröðinni.
Jón Daði gekk í raðir Millwall frá Reading sumarið 2019 og rennur samningur hans út eftir komandi tímabil.

Jón Daði skoraði aðeins eitt mark í 38 deildarleikjum með Millwall í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð og var aðeins þrettán sinnum í byrjunarliði.
Athugasemdir