Fotbolti.net
16.07.03 - 00:00

Quaresma til Barca (staðfest)

Það er orðið töluvert langt síðan að Quaresma samdi við Barcelona en skipti myntin Rochemback vildi ekki fara til Sporting Lisabon og því var ekki hægt að ljúka samningum.
Nú hefur Brassinn ungi fallist á þetta og mun spila með Sporting næstu þrjú tímabil. Reyndar er klásúla í samningnum að Barca geti keypt leikmanninn aftur af loknu hverju tímabilanna þriggja.

Með þessum skiptum losnar eitt "útlendingasæti" en spænsk lið mega aðeins vera með samning við fjóra leikmenn utan Evrópusambandsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.