Fotbolti.net
16.07.26 - 08:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bjarki Garðars til Dortmund (Staðfest)

Bjarki Hrafn ásamt umboðsmanni sínum, Halldóri Ragnari Emilssyni.

Bjarki Hrafn ásamt umboðsmanni sínum, Halldóri Ragnari Emilssyni.

Canon

Mynd: Aðsend

Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að félagið er búið að ná samkomulagi við Dortmund og er Bjarki Hrafn Garðarsson orðinn leikmaður þýska félagsins. Þýska stórliðið kaupir hann af Stjörnunni hvar hann er uppalinn.

Bjarki er gríðarlega spennandi örvfættur framherji, rétt tæplega tveir metrar á hæð, sem fæddur er árið 2010 og varð 16 ára í febrúar. Hann hefur þegar spilað spilað 17 leiki fyrir unglingalandsliðin (U15-U17) og skorað í þeim átta mörk. Hann á að baki þrjá leiki í Bestu deildinni með Stjörnunni á þessu tímabili.
Bjarki úr Bestu til Borussia Dortmund?
TENGT EFNI

Bjarki úr Bestu til Borussia Dortmund?

Hann er genginn í raðir Dortmund og byrjar hjá U19 ára liði félagsins. Dortmund hefur haft augastað á Bjarka í talsverðan tíma og fór hann á sínum tíma í heimsókn til félagsins til að kanna aðstæður. Fótbolti.net fjallaði fyrst um áhuga Dortmund á Stjörnumanninum fyrir rúmu ári síðan.

„Bjarki er framherji sem er líkamlega öflugur og ákveðinn og hefur góða tilfinningu fyrir vítateignum. Við höfum haft hann á radarnum okkar um tíma og erum mjög ánægð með að hann hafi valið BVB," segir Thomas Broich sem er yfirmaður íþróttamála hjá akademíu Dortmund.

Bjarki var eftirsóttur og höfðu fleiri stór félög í Evrópu áhuga á honum. Hann fór m.a. á reynslu til FCK í Danmörku og Red Bull Salzburg í Austurríki. Fótbolti.net sagði þá frá því á sínum tíma að PSV og Nordsjælland hefðu áhuga á kappanum.

Bjarki er sonur Garðars Jóhannssonar, fyrrum leikmanns Stjörnunnar, sem lék á sínum tíma sem atvinnumaður erlendis og lék átta A-landsleiki. Eldri bróðir Bjarka, Dagur Orri, spilar með Val í Bestu deildinni.

Umræðan um söluna á Bjarka til Dortmund er á þá leið að hún sé ein sú hæsta í sögu Garðabæjarfélagsins.

Dortmund hefur horft til íslenskra leikmanna að undanförnu því Kolbeinn Birgir Finnsson var á mála hjá félaginu fyrir nokkrum árum síðan og fyrr í sumar seldi Dortmund bandaríska Íslendinginn Cole Campbell til Elversberg eftir að hafa verið hjá félaginu í fjögur ár.




Í leik með Stjörnunni.

Í leik með Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þykir gríðarlega efnilegur.

Þykir gríðarlega efnilegur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Með aðilum frá Dortmund.

Með aðilum frá Dortmund.

Canon

Mynd: Dortmund

Á æfingu með Dortmund

Á æfingu með Dortmund

Canon

Mynd: Dortmund

Bjarki Garðars til Dortmund (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Bjarki Garðars til Dortmund (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Bjarki Garðars til Dortmund (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.