Bjarki Hrafn Garðarsson, framherji Stjörnunnar, kom inn á í sínum fyrsta leik í Bestu deildinni í gær. Hann er sonur Garðars Jóhannssonar sem lék á sínum tíma með Stjörnunni. Garðar lék einnig sem atvinnumaður erlendis og lék átta A-landsleiki á sínum ferli.
Bjarki Hrafn er 16 ára, fæddur 2010, er stór og stæðilegur og þykir mikið efni. Hann er unglingalandsliðsmaður sem hefur farið erlendis á reynslu síðustu misseri.
Hann hefur farið til RB Salzburg og FC Kaupmannahafnar á reynslu og skoraði fyrr í þessum mánuði þrjú mörk með U16 á þróunarmóti UEFA. Alls hefur hann leikið 17 unglingalandsleiki og skorað átta mörk.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 1 Stjarnan
Hann hefur verið orðaður við þýska stórliðið Borussia Dortmund og var Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, spurður út í leikmanninn í viðtali eftir leik.
„Við vorum með fimm leikmenn úr 3. flokki á bekknum, einn af þeim kom inn í fyrsta skiptið og stóð sig mjög vel og skoraði mark sem var dæmt af."
„Hann er mjög flottur, gerði vel og hefur verið mikið með okkur. Hann er mikið efni og hann fer út (erlendis) og á flottan feril fyrir framan sig," sagði Jökull eftir leikinn. Hann var svo spurður beint út í Dortmund.
„Það er eitthvað sem verður að koma bara í ljós. Hans framtíð ræðst örugglega bara á næstunni," sagði þjálfarinn.