Fotbolti.net
16.07.26 - 12:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sædís til Kölnar (Staðfest)

Komin í þýsku deildina.

Komin í þýsku deildina.

Canon

Mynd: Köln

Hertz
Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir er gengin í raðir þýska félagsins Köln en hún kemur frá Vålerenga í Noregi þar sem hún hefur spilað frá árinu 2024.

Sædís er vinstri bakvörður sem verður 22 ára í september. Hún er uppalin í Ólafsvík og spilaði með Stjörnunni áður en hún hélt til Noregs.

Hún hefur spilað 29 A-landsleiki og spilaði fyrir það 33 leiki fyrir yngri landsliðin.
Blómstrar í Noregi: „Fór út í sterkari deild og finnst ég hafa tekið gott skref þar“
TENGT EFNI

Blómstrar í Noregi: „Fór út í sterkari deild og finnst ég hafa tekið gott skref þar“

Hjá Köln hittir Sædís fyrir liðsfélaga sinn í A-landsliðinu, Söndru Maríu Jessen, sem átti gott síðasta tímabil með Köln.

Hjá Vålerenga spilaði Sædís í Meistaradeildinni og vann titla með liðinu. Hún skrifar undir þriggja ára samning við þýska úrvalsdeildarfélagið.

„Við erum hæstánægð að Sædís hafi valið Köln þrátt fyrir önnur heillandi tilboð. Hún er tæknilega öflugur bakvörður með frábæran vinstri fót, kemur inn með gæði í föstum leikatriði og býr yfir framúrskarandi leikskilningi. Sú staðreynd að það er möguleiki í henni að verða enn betri og hennar öfluga hugarfar verður til þess að hún smellpassar hjá okkur og verður mikilvægur leikmaður hjá okkur á næstu árum," segir Nicole Bender-Rummler sem er yfirmaður fótboltamála hjá kvennaliði Kölnar.

„FC Köln er metnaðarfullt félag. Eftir að hafa rætt við stjórnendur 1. FC Köln og landsliðsfélaga minn, Söndru Maríu Jessen, efaðist ég ekki um að ég vildi ganga til liðs við FC Köln. Ég vona að ég geti gefið nýja liðinu mínu mikla orku. Ég vil þróast áfram hér og ég get lofað því að ég mun alltaf gefa 100 prósent fyrir liðið, félagið og aðdáendurna til að færa bros á andlit margra," er haft eftir Sædísi í tilkynningu félagsins.


Skrifar undir samning til 2029.

Skrifar undir samning til 2029.

Canon

Mynd: Köln

Sandra María er lykilmaður hjá Köln.

Sandra María er lykilmaður hjá Köln.

Canon

Mynd: Köln

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.