Fotbolti.net
16.07.26 - 16:51
Kári Snorrason

Söguleg stund í Laugardalnum - „Var ekki í mínum villtustu draumum“

Vestri mætir Qarabag í forkeppni Evrópudeildarinnar í Laugardal í kvöld.

Vestri mætir Qarabag í forkeppni Evrópudeildarinnar í Laugardal í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestra bíður verðugt verkefni í kvöld er liðið mætir stórliði Qarabag, meisturunum frá Aserbaísjan í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Fyrri leikur liðanna fór fram þann 9. júlí síðastliðinn í Aserbaísjan og enduðu leikar 3-0 fyrir Qarabag. Liðin mætast núna aftur í dag á AVIS-vellinum í Laugardal en heimavöllur liðsins fyrir vestan telst ekki löglegur í Evrópukeppni.

Leikur kvöldsins verður fyrsti Evrópuleikur Vestra á heimavelli. Að því tilefni ræddi Fótbolti.net við Aron Guðmundsson, fjölmiðlamann á Sýn og stuðningsmann Vestra, um leikinn.
Lestu um leikinn: Vestri 0 - 0 Qarabag
Kom ekki að sjálfu sér
„Maður finnur fyrir mikilli spennu hjá stuðningsmönnum. Þetta er staða sem við höfum ekki verið í áður og það er sérkennilegt að sjá liðið í þessari stöðu. Við verðum að muna að þetta gerðist ekki af sjálfu sér, það er búið að vinna fyrir þessu. Við unnum frábæran sigur í bikarævintýrinu í fyrra.“

„Það er mikilvægt að hafa það í huga þegar við förum inn í þessa leiki – að taka þessu ekki sem sjálfsögðum hlut. Sagan segir okkur að þetta gerist ekki oft. Hver veit hvenær þetta gerist næst, vonandi sem fyrst. Við þurfum að njóta þess á meðan það varir. Það fylgir því gífurleg spenna og stolt að sjá liðið sitt spila á þessu stigi í Evrópukeppni.“


Sérstakar tilfinningar
Vestri tapaði fyrri leiknum í Bakú 3-0, Aron segir þó hafa verið stoltur af liðinu að leik loknum.

„Það var ótrúlegt að horfa á þetta 3-0 tap úti. Það fylgdu því sérstakar tilfinningar - að sjá sitt lið spila á þessum gríðarstóra leikvangi gegn liði sem var í Meistaradeildinni og keppti við risa Evrópuboltans á síðasta tímabili.“

„Maður óttaðist að við myndum fá algjöra rasskellingu. Baráttan hjá liðinu var hins vegar algjörlega til fyrirmyndar og það var ekki að sjá að þeir væru að spila á þessu stigi í fyrsta sinn. Það er skrýtið að segja að maður sé stoltur eftir 3-0 tap, en maður er gríðarlega stoltur af liðinu eftir þessa frammistöðu. Það var hálf óraunverulegt að fylgjast með þessu,“
segir Aron.

Stór dagur í sögu Vestra
Við hverju má búast í kvöld?

„Við vitum að það verður mjög erfitt, jafnvel nær ómögulegt, að snúa einvíginu við gegn þessu liði. Maður sá gæðin sem þeir bjuggu yfir í fyrri leiknum. Við förum kannski ekki inn í leik dagsins með þá kröfu að ná slíkum úrslitum, en við komum inn með þá kröfu að leikmennirnir verði sjálfum sér og félaginu til sóma.“

„Ég vil sjá alvöru liðsheild og sömu baráttu og við sáum í fyrri leiknum. Ég veit að margir leggja leið sína í bæinn frá Vestfjörðum til að horfa á leikinn. Kjarninn fyrir sunnan af stuðningsmönnum Vestra er einnig öflugur. Ég býst við alvöru látum og við verðum að njóta augnabliksins. Þetta er vissulega mjög stór dagur í sögu Vestra.“


Hefði viljað spila á einu fegursta vallarstæði landsins
Eins og áður sagði verður leikur kvöldsins spilaður á AVIS-vellinum í Laugardal, heimavelli Þróttar, en Kerecisvöllurinn á Ísafirði telst ekki löglegur í Evrópukeppni.

„Auðvitað hefði maður viljað að þessi leikur færi fram á Ísafirði, á okkar heimavelli. Ég veit að sá möguleiki var kannaður. Maður verður að sjá hvernig einvígið fer. Það bíður okkar erfitt einvígi í Sambandsdeildinni ef okkur tekst ekki að snúa þessu við.“

„Ég veit að forráðamenn Vestra hafa viðrað þann möguleika að fá að spila heimaleikinn í forkeppni Sambandsdeildarinnar á Ísafirði ef svo færi. Ef það yrði raunin væri það geggjuð auglýsing að spila á Ísafirði og því glæsilega vallarstæði, sem er með því fegursta á Íslandi, ef ekki víðar.“


„Ekki í mínum villtustu draumum“
„Þegar maður hugsar til baka hefur maður fylgt liðinu lengi, Vestra, BÍ Bolungarvík og BÍ-88. Ég man eftir því að hafa farið í sólarhringsferðir til að elta liðið þegar það var í 3. deild og bróðir minn var þar að spila,“ segir Aron og heldur áfram.

Að við skyldum eiga eftir að taka þátt í Evrópukeppni var ekki í mínum villtustu draumum. Mér datt ekki nokkurn tímann í hug að sjá mitt lið spila í Evrópukeppni. Að sjá Elmar Atla, Guðmund Arnar, Þórð Gunnar og fleiri gutta sem maður sá alast upp hér fyrir vestan vera fulltrúa síns félags og sinnar heimabyggðar á erlendri grundu á svona stóru sviði er auðvitað frábært og æðislegt í alla staði. Þetta er í raun draumkennt.“

Á svona dögum
Aron segir að á svona dögum beri að hrósa öllu því fólki sem stendur að liðinu.

„Þar ber að nefna Samma, Ívar framkvæmdastjóra og öllum sjálfboðaliðunum sem lifa og hrærast daglega í kringum þetta lið og láta þetta allt ganga upp. Á svona degi ber að heiðra þetta fólk og þakka því fyrir þau frábæru störf sem það hefur unnið fyrir félagið,“ segir Aron að lokum.
Aron Guðmundsson.

Aron Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liðið í Bakú fyrir viku síðan.

Liðið í Bakú fyrir viku síðan.

Canon

Mynd: Vestri

„Þetta kom ekki að sjálfu sér.“

„Þetta kom ekki að sjálfu sér.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Aldrei nokkurn tímann datt mér í hug að sjá mitt lið spila í Evrópukeppni.“

„Aldrei nokkurn tímann datt mér í hug að sjá mitt lið spila í Evrópukeppni.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrri leiknum lauk með 3-0 tapi.

Fyrri leiknum lauk með 3-0 tapi.

Canon

Mynd: Vestri

Qarabag gerði góða hluti í Meistaradeildinni á síðasta tímabili.

Qarabag gerði góða hluti í Meistaradeildinni á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: EPA

Elmar Atli, fyrirliði Vestra.

Elmar Atli, fyrirliði Vestra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.