Fotbolti.net
16.07.26 - 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þjálfarinn vildi taka Kristófer með sér - Fékk fyrirspurnir frá Íslandi

Skrifar undir tveggja ára samning við Reggiana.

Skrifar undir tveggja ára samning við Reggiana.

Canon

Mynd: Reggiana

Kristófer Jónsson var um helgina tilkynntur sem nýr leikmaður ítalska félagsins Reggiana í ítölsku C-deildinni. Reggiana féll úr B-deildinni í vor og er stefnan sett beint upp aftur. Kristófer kemur til Reggiana frá Triestina hvar hann hafði spilað síðustu þrjú tímabil. Hann var lykilmaður í liði Triestina á liðnu tímabili sem féll niður í D-deildina eftir háan stigafrádrátt vegna fjárhagsörðugleika.

Kristófer er miðjumaður sem fæddur er árið 2003 og hefur verið á Ítalíu síðan 2021. Hann gerir tveggja ára samning við Reggiana og hittir þar fyrir sinn fyrrum þjálfara, Attilio Tesser. Fótbolti.net ræddi við Kristófer um félagaskiptin.
Rússíbana tímabil hjá Kristófer: Ætluðum að skrifa söguna á Ítalíu
TENGT EFNI

Rússíbana tímabil hjá Kristófer: Ætluðum að skrifa söguna á Ítalíu

Bæði Reggiana og Tesser sýndu mjög mikinn áhuga
„Ég er mjög sáttur að hafa skrifað undir hjá Reggiana. Tilfinningin er mjög góð og ég er spenntur að takast á við þetta nýja verkefni. Þeir komu frekar snemma upp í sumar. Gamli þjálfarinn minn hjá Triestina skrifaði undir hjá félaginu fyrr í sumar og boltinn fór að rúlla eftir það. Bæði Reggiana og Tesser sýndu mjög mikinn áhuga á að fá mig og mér leist ótrúlega vel á það sem þeir höfðu að segja og hvernig þeir sáu fyrir sig hlutina fyrir komandi tímabil," segir Kristófer.

Tesser var látinn fara frá Triestina í janúar og var svo ráðinn til Reggiana í sumar.

„Það heillaði að koma inn í flottan klúbb og geta verið partur af því að fara upp með liðinu. Það heillaði auðvitað einnig mikið að fá að vinna aftur með Tesser þjálfara. Hann hefur unnið Serie C deildina nokkrum sinnum áður þannig hann hefur mikla reynslu af því að koma liðum upp í Serie B."

Þó nokkur tilboð
Voru fleiri kostir í stöðunni?

„Það hefur verið mikið um áhuga og þó nokkur tilboð á borðinu. Það voru nokkur spennandi tilboð sem mér leist vel á og sum sem fóru eitthvað lengra en önnur en á endanum valdi ég Reggiana. Áhuginn var að lang mestu á Ítalíu en það var einnig áhugi og tilboð annars staðar í Evrópu."

Vildi vera áfram úti
Tékkuðu íslensk félög á þér?

„Félög hafa sýnt áhuga og sent fyrirspurnir en ekkert sem fór neitt mikið lengra en það. Hugurinn hefur alltaf verið á því að halda áfram að spila erlendis og sérstaklega eftir að ég náði að skapa mér nafn á Ítalíu."

Sögufrægt félag
Hvernig félag er Reggiana?

„Reggiana er auðvitað sögufrægt félag og hafa verið undanfarin ár í Serie B. Klúbburinn og umgjörðin í kringum liðið er flott og æfingaaðstæður eru mjög fínar og lítur allt saman vel út. Spilum leikina okkar á sama velli og Sassuolo þannig erum með klassa heimavöll þar sem myndast hörku stemning. Borgin er æðisleg og með rólegt yfirbragð. Stefnan auðvitað hjá öllum liðum sem falla úr Serie B er að komast aftur beint upp. Hér er engin undantekning á því og stefnan er sett á það."

Reggiana var síðast í efstu deild tímabilið 1996/97. Liðið féll úr B-deildinni eftir þrjú tímabil þar. Liðið spilar á MAPEI Stadium sem tekur rúmlega 21 þúsund manns í sæti.

Hvað langar þig til að afreka og upplifa með Reggiana og ertu fenginn til félagsins sem miðjumaður?

„Ég er fenginn sem miðjumaður og er kominn hingað með það markmið að spila alla leiki og hjálpa liðinu að komast upp," segir Kristófer að lokum.

Fyrr í sumar var sóknarmaðurinn Óttar Magnús Karlsson orðaður við Reggiana, en hann hefur verið orððaur við fleiri félög á Ítalíu í sumar.
Þjálfarinn vildi taka Kristófer með sér - Fékk fyrirspurnir frá Íslandi
Canon

Mynd: Reggiana

Mynd af Tesser frá árinu 2011 þegar hann var stjóri Novara.

Mynd af Tesser frá árinu 2011 þegar hann var stjóri Novara.

Canon

Mynd: EPA

Þjálfarinn vildi taka Kristófer með sér - Fékk fyrirspurnir frá Íslandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.