| mið 03.jún 2026 17:00 Mynd: Triestina |
|
Rússíbana tímabil hjá Kristófer: Ætluðum að skrifa söguna á Ítalíu
Kristófer Jónsson hefur yfirgefið ítalska félagið Triestina eftir þrjú ár hjá félaginu. Haukamaðurinn uppaldi gekk í raðir Triestina frá Val sumarið 2023 og var því í þrjú tímabil í ítölsku C-deildinni.
Félagið féll úr deildinni í vor eftir mjög sérstakt tímabil. Félagið lenti í því að mörg stig voru dregin frá liðinu vegna fjárhagsörðugleika.
Það er ljóst að Kristófer ætlar að róa á ný mið, en óvíst er hvar hann mun spila á næsta tímabili. Fótbolti.net ræddi við miðjumanninn.
Einstakt og skrítið tímabil
„Þetta var klárlega mjög skrítið tímabil og hægt að segja að það hafi verið alveg einstakt. Erfitt að tala um að liðið eða ég persónulega hafi spilað vel þar sem við föllum niður um deild en miðað við allt sem við gengum í gegnum frá síðasta sumri og í gegnum allt tímabilið þá fannst mér við oft sýna mjög flotta frammistöðu. Við mættum alltaf út á völl og lögðum allt í sölurnar og sýndum að við vorum ekkert að gefast upp þrátt fyrir allt mótlætið. Við spiluðum flottan fótbolta og margir ungir og óreyndir strákar að spila stóra rullu í liðinu á köflum. En að lokum var stigasöfnunin bara ekki nægileg, en hefði þó skilað okkur í fallumspilið ef hefði ekki verið fyrir stigafrádráttinn," segir Kristófer.
Leið mjög vel í sínu hlutverki á miðjunni
„Ég fékk stórt hlutverk á þessu tímabili. Ég spilaði alla leiki og átti að mínu mati heilt yfir mjög fínt tímabil. Skoraði nokkur mörk og með nokkrar stoðsendingar. Ég fékk mikið traust frá þjálfurunum og leið mjög vel í því hlutverki sem ég var í."
24 stig dregin af liðinu
Kristófer, sem er 23 ára, skoraði þrjú mörk og lagði upp tvö á liðnu tímabili samkvæmt Transfermarkt. Hann var spurður út í stigafrádráttinn og hvort hann hefði fundið fyrir því að það væru vandamál hjá félaginu.
„Það var annars vegar vegna þess að laun voru greidd seint miðað við reglur deildarinnar og hins vegar vegna annarra fjárhags/stjórnar brota hjá eigendahópnum."
„Það var eiginlega ekki hægt að finna ekki fyrir vandræðunum sem voru að eiga sér stað og höfðu átt sér stað á síðasta tímabili á undan. En auðvitað þurfti maður bara að hugsa um það sem maður gat stjórnað sjálfur og það var það sem maður sýndi úti á vellinum. Undanfarin ár hafa bara því miður rosalega margir hlutir farið úrskeiðis á bakvið tjöldin sem hefur leitt okkur hingað."
Brjálaðir stuðningsmenn
„Stuðningsmennirnir voru auðvitað brjálaðir yfir stöðunni á félaginu sínu í fyrrasumar. Það var mikið um mótmæli og þeir heimtuðu að fá inn nýjan eigendahóp, sem svo gerðist seinna meir. Það minnkaði töluvert um stuðningsmennina sem mættu á leikina yfir tímabilið miðað við það tímabilið á undan en það var alltaf eitthvað af fólki sem mætti og studdi við okkur. Maður skildi auðvitað vel fólkið sem mætti ekki á völlinn út af allri óreiðunni en maður kunni mjög vel að meta allan stuðninginn sem við fengum alltaf frá stuðningsmönnunum sem létu sjá sig á vellinum. Það var aldrei neitt vesen á þeim gagnvart okkur."
Pirrandi en verra hjá öðrum
Lentir þú í að fá ekki laun greidd á réttum tíma?
„Já, ég lenti í því, en það lentu allir í því á þessum tíma. Þannig það var auðvitað mjög pirrandi en það var hluti af starfsfólkinu og fólki tengt liðinu sem fékk ekki greitt í marga mánuði. Það er ótrúlegt að það hafi getað gerst."
Settir í félagaskiptabann og máttu ekki byrja að æfa
Þegar stigafrádrátturinn er staðfestur, var einhver von um að halda sér uppi?
„Við vissum snemma síðasta sumar að við myndum byrja með einhver mínusstig og þau voru sjö til að byrja með. Við misstum nokkra af okkar lykilmönnum yfir sumarið og ekki hjálpaði heldur að við vorum settir í félagsskiptabann út af öllu því sem gerðist á síðasta tímabili. Vegna allrar óreiðunnar sem myndaðist yfir sumarið frestaðist undirbúningstímabilið okkar. Það endaði í því að við fengum um rúmar tvær æfingavikur saman í undirbúning fyrir fyrsta leik í bikar. Deildin byrjaði svo viku síðar. Þetta og félagsskiptabannið hjálpaði auðvitað ekkert okkar undirbúning en á meðan þessu stóð sýndum við leikmenn og þjálfarateymi alltaf mjög mikla fagmennsku og einbeitingin okkur var á því að spila saman sem lið og taka einn leik í einu og sjá hvert það myndi taka okkur. Allt annað var ekki í okkar höndum."
„Svo koma þessi þrettán mínusstig í viðbót um miðjan september sem var klárlega gríðarmikill skellur og gerði þetta verkefni okkar mikið, mikið erfiðara og að margra mati ómögulegt að snúa við. Líkurnar á því að halda sér uppi minnkuðu auðvitað talsvert við þetta en þetta breytti ekki miklu í því sem við vorum að reyna að einbeita okkur að gera úti á velli. Við þetta myndaðist líka alveg 100% auka hvatning við það að ef við myndum ná að snúa þessu við myndum við skrá okkur í sögubækurnar í ítölskum fótbolta. Held að ég geti alveg með fullvissu sagt það."
„Eftir stóra stigafrádráttinn og hvernig tímabilið spilaðist færðist einbeitingin okkar á það að bjarga okkur frá falli með okkar eigin stigasöfnun. Það hjálpaði við það að geta einbeitt sér að því hvað við vorum raunverulega að gera úti á velli frekar en það sem hafði gerst og var að gerast utan vallar sem hafði áhrif á stöðutöfluna."
„Yfir tímabilið bætast síðan við fjögur stig til viðbótar sem var svekkjandi að fá í andlitið á meðan við vorum að reyna allt sem var í okkar valdi til að snúa þessu við."
Ætla sér upp úr D-deildinni
Er eitthvað vitað hvað verður um félagið?
„Nýju eigendurnir vissu auðvitað hvað þeir voru að fara út í þegar þeir komu inn í félagið í fyrra. Staðan núna er sú að þeir ætla að vinna sig sem fyrst úr D-deildinni og byggja síðan ofan á það á næstu árum."
Hefur einhver reynt að sannfæra þig um að taka slaginn í D-deildinni?
„Ég veit að þeir hafa reynt að sannfæra eitthvað af okkar yngri leikmönnum eða þeim sem komu upp úr unglingaliðinu að taka slaginn á næsta tímabili. Staðan er samt sem áður mjög óljós varðandi hvernig þessu verður öllu háttað hjá félaginu á næsta tímabili."
Hæðir og lægðir
Hvernig gerir þú upp tímann hjá Triestina í heild sinni?
„Tíminn hjá Triestina hefur einkennst af miklum hæðum og lægðum. Fyrsta tímabilið var mjög erfitt. Ég var að glíma við leiðinleg hnémeiðsli sem héldu mér frá velli stóran hluta af tímabilinu og endaði á að spilaði ekki nema fjóra leiki."
„Á öðru tímabilinu var mikið um þjálfarabreytingar yfir tímabilið og fyrri hluta þess var ég mestmegnis að koma inn á. Í byrjun seinni hluta móts koma upp meiðsli hjá báðum bakvörðunum okkar og ég settur í bakvörðinn. Ég leysti það vel og eftir það var ég kominn með mikið traust frá þjálfaranum og byrja flest alla leiki eftir það, að mestu sem bakvörður en alveg líka leikir sem ég var færður inn á miðjuna. Ég hafði mikið frelsi að fara upp í sóknarleiknum í bakverðinum og mér leið mjög vel þar þó að miðjumannsstaðan sé þar sem mér líður best og tel mig geta sýnt mína styrkleika best."
„Svo fæ ég stórt hlutverk á þessu tímabili og spila alla leiki og mínútur og geri það sem bæði sexa og átta. Ég gat í báðum þessum stöðum virkilega sýnt hvað í mér býr. Það var mikilvægt fyrir mig að fá svona tímabil eftir tvö strembin tímabil og ég ekki að spila í minni uppáhaldsstöðu."
„Eftir þessi þrjú ár hjá félaginu er ég búinn að kynnast mikið af frábæru fólki sem lagði alltaf allt sitt í það að gera Triestina að þeim frábæra klúbbi sem borgin á skilið að hafa. Það er algjör synd að félagið með þennan geggjaða leikvang sé komið á þennan stað í dag, líka vegna þess stuðningsmennirnir lifa fyrir fótbolta, vilja að félaginu gangi vel en það hefur því miður ekki verið raunin í mörg ár."
Elskar borgina
„Trieste borgin er æðisleg að búa í og ég mun örugglega eiga mjög erfitt með að finna jafn góða borg til að búa í seinna meir. Ég bjó í miðbænum þar sem allt var til alls og ekki hægt að kvarta yfir neinu. Borgin er ekki stór þannig það var hægt að labba um allt og svo spillti ekki fyrir að hún er við hafið sem var mjög næs. Heilt fyrir hafa þessi þrjú ár fært mér gífurlega reynslu innan sem utan vallar sem ég mun taka með mér áfram bæði sem leikmaður og persóna."
Markús Páll átti skilið fleiri mínútur
Hjá Triestina var Kristófer liðsfélagi Markúsar Páls Ellertssonar (2006) sem samdi svo við ÍA í vetur. Markús fékk mjög lítið að spila á Ítalíu en hefur leikið mjög vel með ÍA.
„Ég og Markús náðum vel saman og mér fannst hann standa sig mjög vel allan þennan tíma og átti klárlega fleiri mínútur skilið. Hann kemur út á erfiðum tímapunkti, þegar liðinu var ekki að ganga vel og óreiðan að hefjast af alvöru hjá félaginu. Hann lagði sig alltaf 100% fram á æfingum og sýndi þar að hann átti fullan rétt að fá tækifæri til að sýna sig og hjálpa liðinu inni á vellinum. Í gegnum allt þetta var hann alltaf þolinmóður og beið eftir að tækifærið myndi koma. Þetta var mjög erfið staða að vera í fyrir hann og hvað þá svona ungur, en ég reyndi að hjálpa honum eins og ég gat í gegnum þetta."
„Svo verða þjálfarskipti einmitt þegar hann var byrjaður að fá mínútur og var að vinna sig inn traust þjálfarans. Eftir þá breytingu varð staðan hans verri og var einhverra hluta vegna ekki inni í myndinni hjá nýja þjálfaranum og fékk því engin tækifæri til að sýna sig."
„Að lokum held ég að hann hafi tekið rétta ákvörðun að snúa heim og hann hefur heldur betur farið vel af stað með ÍA. Mjög gaman að sjá hann sýna öllum hversu virkilega góður hann er og ég vona að hann haldi þessu formi áfram. Hann hefur unnið vel fyrir þessu og á þetta svo sannarlega skilið," segir Kristófer.
Hefur skapað sér ágætis nafn á Ítalíu
En hvað tekur við hjá Kristófer núna, hvað langar hann að gerist næst?
„Núna er ég bara að ná mér niður eftir tímabilið og njóta lífsins með fólkinu mínu. Síðan á eftir að koma í ljós hvað gerist en ég stefni klárlega á að reyna áfram fyrir mér úti. Það hafa komið fyrirspurnir og áhugi frá liðum úr bæði B- og C-deildinni frá síðasta sumri. Svo hefur það aukist undanfarna mánuði þannig það verður fróðlegt að sjá hvernig það fer. Umspilið í C-deildinni er að klárast og því er nýlokið í B-deildinni, þannig markaðurinn þar er kannski ennþá rólegur eins og er. Maður hefur skapað sér ágætis nafn núna á Ítalíu eftir að hafa spilað með Triestina og einnig eftir tíma minn hjá Venezia í tvö ár. Ég tel mig geta tekið stökkið á hærra svið og er mjög opinn fyrir öllu, ekki bara á Ítalíu."
Fylgist sérstaklega vel með Haukum og kvennaliði Þróttar
Kristófer er eins og fyrr segir uppalinn Haukamaður. Hann er fyrrum unglingalandsliðsmaður, á að baki 23 leiki fyrir yngri landsliðin og þar af eru fimm fyrir U21 landsliðið. Han var keyptur til Vals eftir tímabilið 2020 en var sumarið 2021 fenginn til ítalska félagsins Venezia á tveggja ára láni. Hann var í Val í skamman tíma tímabilið 2023 áður en Triestina keypti hann.
Fylgistu með íslenska boltanum?
„Já, ég hef fylgst mjög mikið með Bestu öll þessi ár sem ég hef verið úti. Hún byrjar mjög vel í ár og lið að koma skemmtilega á óvart bæði jákvætt og neikvætt. Svo fylgist ég auðvitað vel með mínum liðum, bæði Val og sérstaklega Haukum þar sem ég er uppalinn."
„Eldri bróðir minn (Ísak) hefur verið lykilmaður og fyrirliði í liðinu í mörg ár og mjög spennandi tímar framundan á Ásvöllum með komu Gauja Lýðs. Hann kemur auðvitað inn með gríðarlega reynslu og mikið Haukahjarta. Svo fær hann með sér fleiri reynslubolta í bæði þjálfarateymið og liðið sjálft sem verður ógeðslega gaman að fylgjast með í sumar. Maður finnur það að það er mikil stemning yfir Haukunum og gaman að sjá hversu öflugir og vinsælir þeir eru inni á samfélagsmiðlunum, en yngri bróðir minn Viktor sér um þá. Hann hefur heldur betur keyrt upp alla þessa stemningu með geggjuðum vídeóum og efni inni á bæði Instagrammi og Youtube síðum Hauka. Mæli með að allir skoði það þar sem þetta er klárlega eitt besta samfélagsmiðla efni fótboltans á landinu leyfi ég mér að segja."
„Einnig fylgist ég líka mjög vel með Bestu kvenna þar sem kærastan mín, Mist Funadóttir, spilar með Þrótti. Mjög gaman að geta mætt núna á fullt af leikjum hjá henni þar sem maður er á landinu. Hún er orðin algjör lykilmaður í mjög öflugu Þróttaraliði og það hefur verið ógeðslega gaman að sjá hana þróast sem leikmaður á seinustu árum. Verður spennandi að fylgjast með henni og Þrótturunum restina af tímabilinu," segir Kristófer að lokum.