Fotbolti.net
16.08.15 - 11:15
Elvar Geir Magnússon

Eva sögð hafa sofið hjá leikmanni Chelsea

Eva Carneiro að störfum.

Eva Carneiro að störfum.

Canon

Mynd: Getty Images

Eva Carneiro læknir hjá Chelsea hefur sofið hjá leikmanni félagsins. Þetta segir fyrrum kærasti hennar í samtali við The Sun.

Eva fékk mikla athygli eftir að Jose Mourinho, stjóri Chelsea, vildi ekki hafa hana á bekknum þar sem hún veitti Eden Hazard aðhlynningu í óþökk hans í jafnteflisleik gegn Swansea.
Rupert Patterson-Ward, fyrrum kærasti Evu, er í viðtali við The Sun og segir að hún fari sínar eigin leiðir.

„Hún montaði sig af því hversu vinsæl hún væri meðal leikmanna. Hún elskar athygli. Það eru ekki margir sem vita hvernig hún er í raun og veru. Hún er miskunnarlaus og fær það sem hún vill þegar hún vill það. Hún er mikið fyrir kynlíf og við stunduðum það á hverjum degi,\" segir Patterson-Ward.

Hann segir að Eva hafi sofið hjá leikmanni hjá Chelsea en nafngreinir leikmanninn ekki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.