Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fös 16. ágúst 2019 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Ronaldo í stórfurðulegri auglýsingu
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er stjarnan í nýrri auglýsingu frá Shopee, fyrirtæki sem selur vörur frá mörgum söluaðilum á einum stað á veraldarvefnum, líkt og Alibaba og Amazon.

Auglýsingin hefur verið gefin út á nokkrum tungumálum en vörur frá Shopee eru fáanlegar í sjö stórum löndum í suðausturhluta Asíu.

Í auglýsingunni skorar Ronaldo úr aukaspyrnu og fagnar með sínu sígilda fagni. Hann hættir þó að fagna fljótt því enginn er að fagna með honum, allir áhorfendur eru uppteknir að skoða Shopee í símanum.

Dómarinn sýnir Ronaldo skiljanlega Shopee spjaldið sem verður til þess að portúgalska ofurstjarnan byrjar að dansa og skoða Shopee appið.

Auglýsinguna má sjá hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner