Pep Guardiola, stjóri Manchester City, fól leikmannahópi sínum og starfsliði að kjósa nýjan fyrirliða.
Miðjumaðurinn reyndi, Fernandinho, yfirgaf Man City í sumar og fór aftur heim til Brasilíu. Hann hefur verið fyrirliði udanfarin ár og því þurfti að útnefna nýjan fyrirliða.
Þýski miðjumaðurinn Ilkay Gundogan var kosinn nýr fyrirliði liðsins af leikmannahópnum og starfsliði City.
Kevin de Bruyne verður varafyrirliði Englandsmeistarana.
Þá eru Ruben Dias, Kyle Walker og Rodri ásamt þeim í sérstökum leiðtogahóp City. Þeir munu sjá til þess að allt sé með feldu innan hópsins.
Athugasemdir