16.08.26 - 22:53
Ívan Guðjón Baldursson
Albert spilar með nýjum framherja (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið Fiorentina er í stórsókn á leikmannamarkaðinum í sumar eftir mikið vonbrigðatímabil í fyrra.

TENGT EFNI
Frá Real Madrid til Alberts (Staðfest)
Albert Guðmundsson er samningsbundinn Fiorentina og kom með beinum hætti að 16 mörkum í 46 leikjum á síðustu leiktíð.
Hann er með mikið af nýjum liðsfélögum á nýrri leiktíð og var félagið að ganga frá kaupum á framherjanum Mateo Pellegrino, sem kostar um 25 milljónir evra.
Pellegrino, sem er 24 ára og skoraði 9 mörk í 37 deildarleikjum með Parma á síðustu leiktíð, fyllir í skarðið fyrir Roberto Piccoli sem fer til Bologna á lánssamningi með árangurstengdri kaupskyldu. Bologna greiðir um 20 milljónir evra í heildina.
Pellegrino er níundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Fiorentina í sumar enda er félagið búið að næla í leikmenn úr liðum á borð við Real Madrid, Juventus, Tottenham og Bournemouth hingað til.