Fotbolti.net
16.08.26 - 18:38
Ívan Guðjón Baldursson

Barcola og Gakpo búnir að samþykkja samninga

Barcola og Gakpo búnir að samþykkja samninga
Canon

Mynd: EPA

Liverpool er að reyna að styrkja hópinn sinn fyrir upphaf næsta deildartímabils og hefur verið sterklega orðað við franska kantmanninn Bradley Barcola, sem er ríkjandi Evrópumeistari með Paris Saint-Germain en vill skipta um félag til að fá meiri spiltíma.
Barcola vill fá aðalhlutverk í byrjunarliðinu, eitthvað sem er ekki í boði hjá PSG vegna gríðarlega mikillar samkeppni. Barcola og Désiré Doué voru að skiptast á leikjum á síðustu leiktíð þar sem Doué var í byrjunarliðinu í stórleikjum á meðan Barcola byrjaði gegn smærri andstæðingum.

Kantmaðurinn öflugi, sem kom með beinum hætti að 20 mörkum í 49 leikjum á síðustu leiktíð, er búinn að samþykkja samning hjá Liverpool en enska stórveldið á eftir að ná samkomulagi við PSG um kaupverð.

Barcola myndi taka stöðu Cody Gakpo í leikmannahópinum, þar sem Tottenham hefur mikinn áhuga á Hollendingnum.

Gakpo er búinn að samþykkja samningstilboð frá Tottenham en félagið á eftir að ná samkomulagi við Liverpool um kaupverð.

Talið er að PSG vilji um 125 milljónir evra til að selja Barcola sem er með tvö ár eftir af samningi, á meðan Liverpool vill um 80 milljónir evra fyrir Gakpo sem á fjögur ár eftir af sínum samningi.
Barcola og Gakpo búnir að samþykkja samninga
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.