Fotbolti.net
16.08.26 - 19:44
Ívan Guðjón Baldursson

Rúnar Alex kom inn af bekknum

Rúnar Alex kom inn af bekknum
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Síðustu leikjum dagsins er lokið hjá Íslendingunum sem leika erlendis og er þar helst að frétta að markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson kom inn af bekknum í þægilegum sigri FC Kaupmannahafnar.
Rúnar Alex hefur verið varamarkvörður í Kaupmannahöfn undanfarin ár en honum var skipt inn á 54. mínútu í dag þegar króatíski landsliðsmaðurinn Dominik Kotarski þurfti að fara meiddur af velli.

FCK vann þægilegan fjögurra marka sigur á útivelli gegn Randers er liðin mættust í þriðju umferð á nýju deildartímabili í Danmörku. Gunnar Orri Olsen og Viktor Bjarki Daðason voru ónotaðir varamenn hjá FCK, sem er með fullt hús stiga á upphafi tímabils.

Hinn fjölhæfi Mikael Egill Ellertsson var á sínum stað í byrjunarliði Genoa sem tók á móti Ascoli í ítalska bikarnum. Gestirnir náðu forystunni en Genoa snéri stöðunni við og skóp þægilegan sigur að lokum.

Mikael lék fyrstu 78 mínútur leiksins og var skipt af velli í stöðunni 3-1. Lokatölur urðu 4-1 og tekur Genoa á móti Südtirol í næstu umferð.

Í norska boltanum lék Júlíus Mar Júlíusson allan leikinn í tapi hjá Kristiansund. Liðið er í fallsæti í efstu deild, með 15 stig eftir 17 umferðir.

Dagur Dan Þórhallsson var ónotaður varamaður í dýrmætum sigri San Diego gegn Los Angeles FC í bandarísku MLS deildinni. San Diego er með 24 stig eftir 19 umferðir og er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni.

Guðrún Arnardóttir lék að lokum allan leikinn í stórsigri Hammarby í sænska boltanum. Guðrún og stöllur rúlluðu yfir Piteå og sitja í öðru sæti með 37 stig eftir 14 umferðir, tveimur stigum á eftir toppliði Häcken.

Randers 0 - 4 FCK

Genoa 4 - 1 Ascoli

Fredrikstad 1 - 0 Kristiansund

Los Angeles FC 0 - 1 San Diego FC

Hammarby 5 - 0 Pitea
Rúnar Alex kom inn af bekknum
Canon

Mynd: EPA

Rúnar Alex kom inn af bekknum
Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.