16.08.26 - 22:33
Ívan Guðjón Baldursson
Sjóðheitur undir stjórn Freysa - Rosenborg að klára kaupin

Mynd: EPA

Mynd: Rosenborg

Mynd: EPA
Rosenborg hefur ákveðið að festa kaup á Amin Chiakha fyrir metfé í Noregi.
Chiakha hefur verið að gera flotta hluti á láni hjá Rosenborg á tímabilinu en hann er 20 ára gamall og er með þrjá landsleiki að baki fyrir Alsír, eftir að hafa verið lykilmaður í unglingalandsliðum Danmerkur.
Rosenborg hefur ákveðið að nýta kaupákvæði sem fylgdi með lánssamningnum og hljóðar upp á 5 milljónir evra, sem er hæsta kaupverð í sögu norska boltans.
Chiakha hefur verið funheitur að undanförnu og er búinn að skora 7 mörk og gefa 2 stoðsendingar í síðustu 6 deildarleikjum.
Chiakha kom á lánssamningi frá danska stórveldinu FC Kaupmannahöfn og á Rosenborg eftir að semja við leikmanninn um launamál áður en hægt verður að ganga frá félagaskiptunum.
Freyr Alexandersson er aðalþjálfari liðsins sem situr í sjöunda sæti norsku deildarinnar sem stendur, með 24 stig eftir 17 umferðir.