Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. september 2019 21:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Sá besti á Íslandi og ég vil ekki heyra neitt annað"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR er Íslandsmeistari og er það fyllilega verðskuldað.

Til þess að gera titilinn enn sætari fyrir KR, þá unnu þeir titilinn gegn Val á Hlíðarenda. Pálmi Rafn Pálmason skoraði eina mark leiksins, lokatölur 1-0.

Rúnar Kristinsson er að vinna sinn þriðja Íslandsmeistaratitil sem þjálfari KR. Gary Martin, leikmaður ÍBV og fyrrum leikmaður KR, er mikill aðdáandi Rúnars.

„Sá besti á Íslandi og ég vil ekki heyra neitt annað. Þvílíkur þjálfari," skrifar Gary og birtir mynd af sér og Rúnari á Twitter í kvöld.

Hann og Rúnar hafa unnið saman hjá þremur félagsliðum, KR, Lilleström og Lokeren.


Athugasemdir
banner