Fotbolti.net
16.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Annar brottreksturinn á tæpum sex mánuðum

Annar brottreksturinn á tæpum sex mánuðum
Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Bologna hefur ákveðið að reka þjálfarann Domenico Tedesco eftir slaka byrjun á tímabilinu en greint verður frá ákvörðunni á næstu sólarhringum.
Bologna hafnaði í áttunda sæti ítölsku deildarinnar á síðustu leiktíð og í kjölfarið hætti Vincenzo Italiano með liðið og tók við Besiktas í Tyrklandi.

Tedesco, sem hafði verið rekinn frá Fenerbahce í apríl, tók við Bologna í byrjun júní.

Liðið hefur aðeins náð í eitt stig úr fyrstu fjórum umferðum Seríu A og virðist þolinmæðin þegar vera á þrotum.

Ítalskir miðlar segja að félagið hafi tekið ákvörðun um að reka Tedesco. Stefano Pioli, Raffaele Palladino og Roberto D'Aversa eru sagðir efstir á blaði hjá Bologna.

Þetta yrði í annað sinn á tæpum sex mánuðum sem Tedesco er látinn taka pokann, en áður hefur hann þjálfað Schalke, Leipzig, Spartak Moskvu og belgíska landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.