16.10.26 - 21:39
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Mark frá Jamie Vardy dugði ekki

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Burnley 1 - 2 Wolves
1-0 Jamie Vardy ('20 )
1-1 Fer Lopez ('39 )
1-2 Tawanda Chirewa ('72 )
1-0 Jamie Vardy ('20 )
1-1 Fer Lopez ('39 )
1-2 Tawanda Chirewa ('72 )
39 ára gamall Jamie Vardy, sem fagnar fertugsafmæli í janúar, var í byrjunarliði Burnley og skoraði fyrsta mark leiksins á heimavelli gegn Wolves í kvöld.
Liðin mættust í fyrsta leik helgarinnar í Championship deildinni á Englandi og var mikil eftirvænting fyrir slaginn, enda hér á ferð tvö lið sem féllu úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Burnley var sterkara liðið í fyrri hálfleik en spænska U21 landsliðsmanninum Fer López tókst að jafna metin á 39. mínútu, svo staðan var 1-1 í leikhlé.
Úlfarnir náðu stjórn á leiknum í síðari hálfleik og skoraði Tawanda Chirewa sigurmarkið um leið og hann kom inn af bekknum. Lokatölur 1-2.
Úlfarnir eru í sjötta sæti með 17 stig eftir 10 umferðir, á meðan Burnley situr í fallbaráttu með 8 stig eftir hörmulega byrjun á nýju tímabili.