16.10.26 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Farke búinn að samþykkja nýjan samning hjá Leeds

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Daniel Farke þjálfari Leeds United er búinn að samþykkja nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2029.
Ben Cross hjá The Athletic greinir frá þessu en Leeds hefur verið að gera flotta hluti undir stjórn Farke eftir að hann kom liðinu upp úr Championship deildinni í fyrravor.
Leeds forðaðist svo fall úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð nokkuð örugglega með að safna 47 stigum og hefur farið vel af stað á nýju tímabili. Lærlingar Farke eiga 9 stig eftir 6 umferðir og hafa sýnt mjög góðar frammistöður.
Farke er 49 ára gamall og hefur meðal annars þjálfað Borussia Mönchengladbach og Norwich City á ferlinum.