Fotbolti.net
16.10.26 - 20:48
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Raimondo með flugeldasýningu fyrir nýliðana

Ítalía: Raimondo með flugeldasýningu fyrir nýliðana
Canon

Mynd: EPA

Frosinone 4 - 2 Sassuolo
1-0 Giacomo Calo ('9 )
1-1 Domenico Berardi ('15 )
2-1 Antonio Raimondo ('26 )
3-1 Antonio Raimondo ('30 )
3-2 Kristian Thorstvedt ('37 )
4-2 Antonio Raimondo ('57 )
Nýliðar Frosinone hafa farið gríðarlega vel af stað í efstu deild ítalska boltans og lögðu þeir Sassuolo að velli í fyrsta leik helgarinnar.

Fimm mörk voru skoruð í gríðarlega fjörugum fyrri hálfleik þar sem Antonio Raimondo fór á kostum með tvennu áður en hann innsiglaði 4-2 sigur með því að fullkomna þrennuna í síðari hálfleik.

Arijanet Muric átti slæman leik á milli stanga Sassuolo og var færanýting gestanna ekki jafn góð og hjá heimamönnum í opnum og skemmtilegum slag.

Giacomo Caló skoraði fyrsta markið eftir skelfileg mistök Darryl Bakola sem missti boltann á slæmum stað út af grimmri hápressu heimamanna.

Domenico Berardi jafnaði metin sex mínútum síðar þegar hann slapp í gegn eftir skyndisókn og komst framhjá Lorenzo Palmisani, markverði Frosinone sem hefur átt ótrúlegar frammistöður í síðustu leikjum liðsins. Palmisani gerði mistök með að fara af marklínunni.

Giorgi Kvernadze hélt hann hefði svo komið heimamönnum yfir á nýjan leik en var dæmdur rangstæður. Það kom ekki að sök því nú var komið að Raimondo að láta til sín taka. Fyrst var hann á undan Muric í fyrirgjöf til að skora alvöru framherjamark og skömmu síðar tvöfaldaði hann forystuna eftir hörmulegan varnarleik hjá Sassuolo, þar sem Muric og Duje Caleta-Car gáfu Raimondo ókeypis mark án þess að vera undir nokkurri pressu.

Sassuolo skapaði góð færi og minnkaði muninn á 37. mínútu þegar Kristian Thorstvedt slapp í gegn eftir magnað þríhyrningsspil við Sebastiano Esposito.

Síðari hálfleikurinn var rólegri og innsiglaði Raimondo sigur Frosinone þegar hann fylgdi skalla eftir með marki af stuttu færi, eftir stórkostlega sendingu frá Kvernadze sem sveif yfir varnarlínuna.

Lokatölur 4-2. Frosinone er með 13 stig eftir 7 fyrstu umferðir deildartímabilsins. Sassuolo situr eftir með 8 stig.
Ítalía: Raimondo með flugeldasýningu fyrir nýliðana
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.