Fotbolti.net
16.10.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Reijnders og Retegui í toppsætið - Fekir og Batshuayi á botninum

Reijnders og Retegui í toppsætið - Fekir og Batshuayi á botninum
Canon

Mynd: EPA

Al-Qadsiah 2 - 1 Abha
0-0 Mateo Retegui, misnotað víti ('5)
1-0 Mateo Retegui ('30)
2-0 Mohammed Abu Al-Shamat ('69)
2-1 Alimani Gory ('95)
Al-Qadsiah er komið á topp sádi-arabísku deildarinnar eftir sigur á heimavelli gegn Abha í dag.

Mateo Retegui, sem á 11 mörk í 28 landsleikjum fyrir Ítalíu, klúðraði vítaspyrnu á fimmtu mínútu en bætti upp fyrir mistökin á 30. mínútu. Retegui skoraði þá eftir undirbúning frá Tijjani Reijnders, fyrrum leikmanni Manchester City og AC Milan.

Í síðari hálfleik tvöfaldaði Mohammed Abu Al-Shamat forystu heimamanna og tókst gestunum ekki að minnka muninn fyrr en seint í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 2-1.

Al-Qadsiah er með 22 stig eftir 9 umferðir, einu stigi fyrir ofan Al-Hilal sem á leik til góða. Abha er með 2 stig á botninum.

Julian Weigl var einnig meðal byrjunarliðsmanna í sigurliði Al-Qadsiah, á meðan Nabil Fekir, Michy Batshuayi og Georges-Kevin N'Koudou voru í tapliði Abha.
Reijnders og Retegui í toppsætið - Fekir og Batshuayi á botninum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.