Fotbolti.net
16.10.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Vilja að forsetinn segi af sér eftir líkingu við Goebbels

Vilja að forsetinn segi af sér eftir líkingu við Goebbels
Canon

Mynd: EPA

Opinbert ummælastríð Real Madrid við Javier Tebas, forseta spænska fótboltasambandsins, er að ná hápunkti þessa dagana. Real Madrid krefst þess að Tebas segi af sér eftir síðustu ummæli hans um spænska stórveldið.
Tebas sakar Real Madrid um að beita miklum áróðri þegar kemur að orðræðu stjórnenda félagsins og málpípum þeirra í fjölmiðlum, auk þess að birta mikið einhliða efni á sjónvarpsstöð félagsins og öðrum miðlum. Hann segir að áróðurstækni fótboltafélagsins minni hann einna helst á áróðurstæknina sem Joseph Goebbels beitti fyrir þriðja ríkið á sínum tíma.

„Real Madrid telur það gjörsamlega ólíðandi og grafalvarlegt að einstaklingur sem fer með svo mikið vald og ábyrgð í spænska fótboltaheiminum líki félaginu okkar við nasistastjórnina. Þetta er enn ein tilraunin til að gera lítið úr Real Madrid og draga úr trúverðugleika félagsins," segir meðal annars í yfirlýsingu.

Tebas hefur verið duglegur við að tjá sig um málið á Twitter og segir það ekki vera nýtt að Real Madrid kalli eftir afsögn hans, líkt og félagið hefur gert síðastliðin 13 ár.

Til gamans má geta að Tebas er stuðningsmaður Real Madrid, en telur félagið hafa fyrir löngu síðan týnt gildum sínum.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.