17.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Jardel til Ancona (Staðfest)




Ítalska liðið Ancona hefur fengið brasilíska sóknarmanninn Mario Jardel að láni frá Bolton út þessa leiktíð. Jardel sem kom til Bolton fyrir þessa leiktíð hefur átt í vandræðum utan vallar undanfarin ár en hann þykir mikill markaskorari þegar að hann er í sínu besta formi. Sam Allardyce stjóri Bolton fékk Javi Moreno á láni fyrr í mánuðinum og því ætlar hann að leyfa Jardel að fara til Ítalíu að reyna finna sitt gamla form en reyndar var þessi brasilíski sóknarmaður nálægt því að fara til spænska liðsins Espanyol fyrr í vikunni.
Jardel mun leika með Corrado Grabbi í fremstu víglínu hjá Ancona en Grabbi lék einnig í Englandi með Blackburn og keypti Ancona hann fyrr í þessum mánuði.
Ancona situr í botnsætinu í Serie A með aðeins fjögur stig eftir sextán leiki.
Ancona situr í botnsætinu í Serie A með aðeins fjögur stig eftir sextán leiki.
