Lorenzo Insigne átti stórleik er Napoli rúllaði yfir Fiorentina í ítalska boltanum í dag.
Insigne skoraði tvö og lagði eitt upp áður en honum var skipt útaf á 79. mínútu.
Stoðsending Insigne var vægast sagt mögnuð og hefur vakið mikla athygli. Hann snerist á milli andstæðinga og lék á hvern þeirra fætur öðrum áður en hann gaf gullfallega stungusendingu á Hirving Lozano.
Insigne er 29 ára gamall og er fyrirliði Napoli. Hann hefur spilað hátt upp í 400 keppnisleiki fyrir félagið sitt.
Stoðsendingu Insigne má sjá hér
Matteo Politano gerði einnig frábært mark í leiknum sem má sjá hér.
Athugasemdir